fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Guðlaugur Þór ávarpaði öryggisráðið

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 24. apríl 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ungt fólk, friður og öryggi var meginþemað í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna sem Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, ávarpaði í opinni umræðu í New York í gær. Í ræðu sinni kom Guðlaugur Þór inn á þátt og mikilvægi ungs fólks í umræðu um frið og öryggi, og væntingar þess til lífsviðurværis og velsældar.

„Ungt fólk í dag, um 1,8 milljarður, er betur tengt og upplýst en nokkru sinni fyrr. Það þekkir og getur borið saman ólíka heimshluta – það veit og sér hvar stjórnvöld og lýðræði virka, en það veit einnig hvar skortur fyrirfinnst og hvernig mannréttindabrot og ójafnrétti grafa undan friði og hagsæld,“

sagði Guðlaugur Þór meðal annars í ræðu sinni.

Utanríkisráðherra benti jafnframt á að allur meginþorri ungs fólks vilji láta gott af sér leiða, sé friðsamlegt og annt um umhverfi sitt. Engu að síður sé tilhneiging til að horfa á unga fólkið sem vandamál fremur en samverkafólk og umræðan í fjölmiðlum gefi oft ranga mynd af ungum karlmönnum.

„Samfélag sem gefur ungu fólki hlutverk og leyfir því að taka þátt er líklegra til að búa við frið,“

sagði Guðlaugur Þór ennfremur.

Þá átti utanríkisráðherra fund með nýjum utanríkisráðherra Póllands, Jacek Czaputowicz, og voru tvíhliða samskipti ríkjanna, öryggismál, orkumál og uppbyggingarsjóður EES til umfjöllunar. Einnig kom Guðlaugur Þór inn á framkvæmd EES samningsins og tveggja stoða fyrirkomulag hans, sem og nauðsyn þess að vestræn ríki sýni samstöðu sín á milli sem út á við, til dæmis þegar kemur að tollum á innri markaði Evrópu.

„Samskipti Íslands og Póllands markast mjög að því að um 12.000 Pólverjar búa á Íslandi og hafa auðgað okkar samfélag í gegnum áratugina. Þá er Pólland vaxandi markaður fyrir íslenskar vörur og þjónustu og ferðamennska milli landanna hefur færst í aukana á umliðnum árum. Við erum bandamenn í Atlantshafsbandalaginu og Íslendingar munu aldrei gleyma því þegar Pólland rétti okkur vinarhönd á erfiðum tíma í fjármálahruninu,“

segir Guðlaugur Þór.

Ræða ráðherra

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki