fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

ASÍ um fjármálaáætlunina: „Um þessa leið ríkisstjórnarinnar verður ekki nein sátt“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 24. apríl 2018 15:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miðstjórn ASÍ lýsir yfir vonbrigðum sínum  með fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar í yfirlýsingu í dag. Þar segir að ekki verði nein sátt um leið ríkisstjórnarinnar og muni hún torvelda gerð kjarasamninga á komandi misserum. Er fingrum helst fett út í að ríkisstjórnin ætli að veikja tekjustofna við brothættar efnahagshorfur og draga úr stuðningi í formi barnabóta og vaxtabóta. Þá er sagt að of lítið sé gert til að mæta alvarlegum vanda á húsnæðismarkaði.

Yfirlýsingin er svohljóðandi:

„Ályktun um fjármálaáætlun 2019-2023
Miðstjórn ASÍ lýsir miklum vonbrigðum með fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára og
gagnrýnir harðlega þær áherslur sem þar eru kynntar. Á undanförnum árum hefur ASÍ lagt mikla
áherslu á mikilvægi þess að velferðarkerfið verði endurreist og dregið verði úr skattbyrði þeirra
tekjulægstu með því að ráðstafa í það mikilvæga verkefni auknum tekjum ríkisins vegna hagvaxtar.
Þannig væri hægt að auka sátt í samfélaginu og tryggja að á næstu fimm árum verði hlutdeild
velferðar af landsframleiðslu komin á svipað stig og var fyrir hrun. Með þessari fjármálaáætlun til
næstu fimm ára ákveður ríkisstjórnin að veikja tekjustofna við brothættar efnahagshorfur og draga úr
stuðningi í formi barnabóta og vaxtabóta. Einnig er of lítið gert í að mæta alvarlegum vanda á
húsnæðismarkaði og fyrirséð að ekki verði byggt nægilega mikið til að mæta fyrirliggjandi þörf.
Þing ASÍ hafa ítrekað ályktað um að forsenda þess að hér verði hægt að þróa og útfæra
samningamódel að Norrænni fyrirmynd væri að velferðarkerfið verði þróað nær því kerfi sem
frændur okkar hafa byggt upp. Miðstjórn ASÍ áréttar að um þessa leið ríkisstjórnarinnar verður ekki
nein sátt. ASÍ ákvað að skipa ekki fulltrúa í Þjóðhagsráð vegna þess að of naumt væri skammtað til
velferðar- og menntamála. Þessi stefna ríkisstjórnarinnar mun klárlega torvelda gerð kjarasamninga á
komandi misserum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“