fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Sérframboð Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi ?

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 23. apríl 2018 09:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í undirbúningi er sérframboð fólks sem lengi hefur fylgt Sjálfstæðisflokknum á Seltjarnarnesi. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu. Skafti Harðarson er í forsvari hópsins, sem hann segir ósáttan við fjármálastjórn bæjarins. Þá segir hann alla „pólitíska forystu bókstaflega vanta“.

Skafti telur að bærinn sé að kosta of miklu til við byggingu hjúkrunarheimilis við Bygggarða á Seltjarnarnesi, en bærinn á að greiða 15% af byggingarkostnaði, sem er áætlaður um 1400 milljónir króna. Skafti telur einnig að reksturinn, sem verði á forræði ríkisins, verði of áhættusamur þar sem daggjöldin dugi tæpast fyrir rekstrinum.

Þá segir Skafti að kaup bæjarins á húsinu Ráðagerði, fyrir 100 milljónir, til hýsingar ýmiskonar menningarstarfsemi, hafi verið fráleit ráðstöfun, með vísun til stöðu bæjarsjóðs, sem rekinn var með 99 milljóna króna tapi á síðasta ári.

Skafti segir það skýrast um miðja viku hvort af framboðinu verði.

Í sveitastjórnarkosningunum árið 2014 fékk Sjálfstæðisflokkurinn fjóra fulltrúa, Samfylkingin tvo, Neslistinn einn, en Framsókn náði ekki inn manni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“