fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Málefni hergagnaflutninga verði færð milli ráðuneyta

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 23. apríl 2018 15:00

Húsnæði utanríkisráðuneytisins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forsætisráðherra hyggst leggja til við forseta Íslands að stjórnskipuleg ábyrgð á leyfisveitingum íslenskra stjórnvalda skv. 1. mgr. 78. gr. loftferðalaga vegna hergagnaflutninga með borgaralegum loftförum verði færð frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu til utanríkisráðuneytisins. Þessi áform Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, um breytingu á forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, sem og áform utanríkisráðuneytisins um endurskoðun reglna og breytt verklag við veitingu leyfa til hergagnaflutninga voru kynnt ríkisstjórn á fundi hennar fyrir helgi.

Samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytið og utanríkisráðuneytið, í samráði við forsætisráðuneytið, hafa á undanförnum mánuðum unnið að því að endurskoða verkferla við veitingu leyfa vegna hergagnaflutninga.

Ástæðan fyrir þessum breytingum á verkaskiptingu er sú að það mat sem fram fer við leyfisveitingar skv. 1. mgr. 78. gr. loftferðalaga snýr ekki að flugöryggi heldur fyrst og fremst að alþjóðlegum skuldbindingum og stefnu Íslands í alþjóðlegum öryggis- og varnarmálum, sem og mannúðar- og mannréttindamálum. Þessir málaflokkar heyra undir utanríkisráðuneytið og nauðsynleg sérþekking er því til staðar í því ráðuneyti. Sömu sjónarmið eiga við um 5. mgr. 78. gr. loftferðalaga, varðandi flutning annars varnings en hergagna til að halda uppi allsherjarreglu og öryggi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt