fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Hægir á fjölgun í ferðaþjónustu

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 23. apríl 2018 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á 12 mánaða tímabili, frá mars 2017 til febrúar 2018, voru að jafnaði 17.097 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 662 (3,9%) frá síðustu 12 mánuðum þar á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 184.300 einstaklingum laun sem er aukning um 8.400 (4,6%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Í febrúar 2018 voru 1.727 launagreiðendur og um 24.700 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu, og hafði launþegum fjölgað um 700 (3%) samanborið við febrúar 2017. Þó að launþegum fjölgi enn í þeirri atvinnugrein þá hefur hægt á fjölguninni. Á sama tímabili hefur launþegum í heild fjölgað um 6.800 (4%).

Tafla 1. Fjöldi launagreiðenda og launþega í nokkrum atvinnugreinum¹
Launagreiðendur Launþegar í febrúar
feb. 2018 2017 2018 Breyting %
Allar atvinnugreinar   17.097 177.500 184.300 6.800 4
Sjávarútvegur (ÍSAT nr. 031, 102) 451 7.800 8.300 600 7
Framleiðsla án fiskvinnslu (ÍSAT nr. 10-33 án 102) 1.039 16.400 16.600 200 1
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (ÍSAT nr. 41-43) 2.635 11.300 12.700 1.500 13
Sala, viðgerðir og viðhald á vélknúnum ökutækjum og tengivögnum (ÍSAT nr. 45) 487 3.300 3.400 100 2
Heildverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 46) 966 8.400 8.600 200 3
Smásöluverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 47) 847 14.500 15.000 500 3
Fræðslustarfsemi og opinber stjórnsýsla (ÍSAT nr. 84-85) 575 39.400 40.800 1.400 4
Heilbrigðis- og umönnunarþjónusta (ÍSAT nr. 86-88) 1.118 15.700 16.600 1.000 6
Einkennandi greinar ferðaþjónustu (ÍSAT nr. 491, 4932, 4939, 501, 503, 511, 551-553, 561, 563, 771, 7721, 79) 1.727 24.000 24.700 700 3
Tækni- og hugverkaiðnaður (ÍSAT nr. 20, 254, 26-30, 325, 53, 58, 60-63, 72) 894 12.900 12.900 0 0
Skapandi greinar (ÍSAT nr. 3212, 58-60, 6201-6202, 7021, 7111, 731, 741-743, 8552, 90, 9101-9102) 1.579 9.300 8.700 -600 -6
¹ Nánari lýsing á þessum atvinnugreinaflokkum er að finna í lýsigögnum

Endurskoðun hagtalna
Tölurnar sem hér um ræðir eru bráðabirgðatölur. Þar sem byggt er á staðgreiðslugögnum getur verið vanmat í nýjustu tölum þegar launagreiðendur skila ekki inn upplýsingum tímanlega. Meðal annarra skekkjuvalda má nefna orlofsgreiðslur til fyrrverandi starfsmanna. Þegar nýjar tölur eru birtar verða jafnframt birtar endurskoðaðar tölur fyrir fyrri tímabil. Nánari lýsingu á skekkjuvöldum, áhrifum þeirra og endurskoðun birtra talna má finna í lýsigögnum og í talnaefni um endurskoðun hagtalna.

Áður birtar tölur hafa verið endurskoðaðar, þ.e. tekið tillit til nýrra upplýsinga um launagreiðslur og nýjustu upplýsinga um atvinnugreinaflokkun.

Heildarfjöldi launagreiðenda í janúar 2018 telst nú vera 17.248 og heildarfjöldi launþega 184.300. Fjöldi launþega jókst um 8.400 (4,7%) frá janúar 2017 til janúar 2018.

Þegar fréttatilkynning var gefin út í mars 2018 töldust vera 16.774 launagreiðendur og 183.000 launþegar í janúar 2018. Fjöldi launþega var þá talinn hafa aukist um 7.000 (4,0%) frá janúar 2017 til janúar 2018.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja. Yfirlitið byggist á skattframtölum fyrir tekjuárin 2002–2016 og gefur ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Hagstofa Íslands framkvæmir samfellda vinnumarkaðsrannsókn (VMR) allt árið um kring og birtir helstu niðurstöður (atvinnuþátttöku, fjölda starfandi, atvinnuleysi o.fl.) mánaðarlega og ítarlegri sundurliðun (s.s. starfshlutfall og vinnutíma eftir atvinnugreinum) árlega. Í VMR eru einnig upplýsingar um þá sem eru sjálfstætt starfandi og aðeins eru taldir með þeir sem eru, skráðir í Þjóðskrá og með fasta búsetu á Íslandi. Því er eðlilegt að tölur í þessari frétt séu ekki nákvæmlega þær sömu og í VMR. Tölum um fjölda launagreiðenda og launþega er fyrst og fremst ætlað að sýna þróun til skamms tíma og sveiflur innan árs.

Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin. Hagstofa hóf nýlega birtingu á heildarfjölda starfandi samkvæmt skráargögnum, þ.e. bæði launþegum og öðrum. Þar eru starfandi meðal annars flokkaðir eftir aldri, kyni og lögheimili.

Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki