Anna Lísa Björnsdóttir hefur hafið störf sem kosningastjóri Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Þetta kemur fram í tilkynningu frá VG. Anna Lísa, sem annars stjórnar skrifstofu og samskiptamiðlum fyrir VG, fær tímabundið leyfi frá störfum sínum þar fram yfir kosningarnar.
Anna Lísa hefur unnið fyrir bókaútgáfu hérlendis sem og erlendis undanfarin ár og sem skipuleggjandi fyrir BBC á Íslandi.
Anna Lísa er ein af stofnendum Gleym-mér-ei styrktarfélags, auk þess sem hún sat í stjórn Hlaðvarpans og stýrði ritnefnd á vegum Styrktarfélagsins LÍF um bæklinga um missi á meðgöngu.
Anna Lísa hefur verið félagi í VG frá stofnun hreyfingarinnar.
Kosningastjóri og kosningastjórn VG í Reykjavík hafa aðsetur að Þingholtsstræti 27. Nánari upplýsingar annalisa@vg.is
Vinstri græn bjóða fram V lista í tíu sveitarfélögum í vor og taka auk þess þátt í blönduðum framboðum víða um land. Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm, starfar sem miðlægur kosningastjóri og aðstoðar VG framboð víða um land, sem ekki hafa tök á að ráða sér miðlægan kosningastjóra, eins og Reykjavík og fleiri stór sveitarfélög. En kosningastjórar hafa verið ráðnir í Kópavogi, Hafnarfirði, Borgarbyggð og á Akureyri. Upplýsingar má finna á kosningaheimasíðu VG. http://x18.vg.is/starfsfolk/