fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Kosningaloforð Samfylkingarinnar: Borgarlína, Miklabraut í stokk og úrbætur í húsnæðis- og leikskólamálum

Ritstjórn Eyjunnar
Laugardaginn 21. apríl 2018 18:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kosningaáherslur Samfylkingarinnar voru kynntar í dag í Gamla bíó. Borgarlína strax, hagkvæmt húsnæði fyrir fyrstu kaupendur, Miklabraut í stokk og leikskóli fyrir 12-18 mánaða börn voru helstu áhersluatriðin sem kynnt voru, að því er fram kemur í tilkynningu:

 

Borgarlína strax og hagkvæmt húsnæði fyrir fyrstu kaupendur
Borgarlína, Miklabraut í stokk, leikskóli fyrir 12-18 mánaða og húsnæði fyrir ungt fólk
og fyrstu kaupendur eru meðal kosningamála Samfylkingarinnar í vor, sem Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri kynnti á fjölmennum fundi í Gamla bíó í dag.

Í máli borgarstjóra kom meðal annars fram að á kjörtímabilinu hafi tíðni á helstu
leiðum strætó verið aukin, næturstrætó farið að ganga og forgangur strætó í akstri
hafi aukist til muna auk þess sem farþegum fjölgar hröðum skrefum. Næsta verkefni í
almenningssamgöngum sé að klára samninga við ríkið og hefja framkvæmdir við
borgarlínu á næsta ári. Borgin geti þá nýtt fjárhagslegan styrk sinn til að koma henni
enn hraðar af stað.

Þá kom fram mikilvægi þess að leggja Miklubraut í stokk þar sem Reykjavíkurborg
gæti tryggt fjármagn til stokksins þótt framlög ríkisins komi inn á lengri tíma.
Stokkurinn væri mikilvægur til að auka öryggi, tengja hlíðarnar sitthvorumegin
götunnar og hefja uppbyggingu ofan á stokknum. Samfylkingin vill að
Reykjavíkurborg bjóðist til að fjármagna sérstakt félag rikis, borgar og annarra
sveitarfélaga sem myndi ráðast í þessi verkefni strax, þótt greiðslur ríkis og annarra
kæmu til á lengri tíma. Þannig myndu jákvæð áhrif umferð, umhverfi og uppbyggingu
koma fram strax á næstu árum.

Borgarstjóri sagði að borgin hafi aldrei verið eins fjölbreytt, skemmtileg og spennandi.
Mesta íbúafjölgun í 30 ár eigi sér nú stað í Reykjavík og aldrei hafi fleiri íbúðir farið í
uppbyggingu á nokkru öðru kjörtímabili í sögu borgarinnar. Samfylkingin vill halda
áfram að tryggja húsnæði fyrir alla þjóðfélagshópa, fjölga félagslegum íbúðum og
halda áfram að bjóða fjölbreytta valkosti á húsnæðismarkaði en um leið hvatti
borgarstjóri sveitarfélög í kraganum til að taka þátt í uppbyggingu húsnæðis fyrir þá
allra verst settu – skattgreiðendur í Reykjavík geti ekki einir og sér borið ábyrgð á
þeim hópi sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu og landsins alls eiga að bera
sameiginlega.

Næsta verkefni á sviði húsnæðismála væri að tryggja ungu fólki og fyrstu kaupendum
500 íbúðir í Gufunesi, Úlfarsárdal, Bryggjuhverfi, Skerjafirði, á Veðurstofuhæð og á
lóð Stýrimannaskólans.
Borgarstjóri sagði að manneklan á leikskólum borgarinnar væri á góðri leið en áfram
verði viðvarandi verkefni að fjölga starfsfólki. Næsta verkefni sem hægt væri að
ráðast í á næsta kjörtímabili væri að klára uppbyggingu leikskólana og brúa bilið milli
fæðingarorlofs og leikskóla. Byggja þurfi 6 nýja leikskóla og fjölga leikskólaplássum
um 800 á kjörtímabilinu, opna sjö nýjar ungbarnadeildir og sex nýjar leikskóladeildir
þar sem eftirspurnin er mest strax í haust. Á kjörtímabilinu verði hægt að bjóða 12-18
mánaða börnum pláss á leikskólum borgarinnar.

Fullt hús var í Gamla bíó en auk borgarstjóra Heiða Björg Hilmisdóttir borgarfulltrúi og
varaformaður Samfylkingarinnar sem fór yfir farin veg, Jón Gnarr fyrrverandi
borgarstjóri fór með gamanmál, KK spilaði nokkur lög og hljómsveitin Sykur lauk
fundinum með laginu Reykjavík. Saga Garðarsdóttir leikkona var fundarstjóri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“