Hið nýja bæjarmálafélag í Vestmannaeyjum, Fyrir Heimaey, sem stofnað var að hluta til vegna óánægju nokkurra Sjálfstæðismanna út í flokkinn fyrir að halda ekki prófkjör fyrir komandi sveitastjórnarkosningar, er nú í uppnámi, aðeins nokkrum dögum eftir stofnun þess, samkvæmt áreiðanlegum heimildum Eyjunnar.
Elís Jónsson, sem sagður er hugmyndafræðingur hins nýja framboðs, er sagður óánægður með að hafa verið aðeins boðið 4. sætið á lista af uppstillingarnefndar hins nýja framboðs og hyggst ekki taka því boði.
Hann hugðist gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í janúar, en fékk aldrei tækifæri til.
Íris Róbertsdóttir mun leiða listann, en hún er fyrrum varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og varð við áskorun heimamanna um að leiða hinn nýja lista eftir að efnt var til undirskriftarsöfnunar þess efnis. Hún var ósátt við hlutskipti sitt þegar henni var boðið þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins sem þó má telja öruggt sæti bæjarfulltrúa.
Þá herma heimildir Eyjunnar að hluti uppstillingarnefndar stjórnmálaaflsins Fyrir Heimaey hafi sagt sig frá störfum, en það eru sagðir stuðningsmenn Elísar.
Leó Snær Sveinsson, formaður hins nýja stjórnmálaafls í Vestmannaeyjum, vildi ekki staðfesta meinta óánægju:
„Menn eru bara að stilla saman strengi,” sagði hann.
Hvorki náðist í Elís né Írisi við vinnslu fréttarinnar.
Uppfært kl 11.00
Bæjarmálafélagið sendi frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Eyjunnar þar sem sagt sé að uppstillingarnefnd hafi ekki klofnað. Því er hér komið á framfæri.
Yfirlýsing
Frétt á DV/Eyjan í gærkvöldi sem síðan hefur verið dreift á netmiðlum hér í Eyjum er röng. Uppstillingarnefnd bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey hefur ekki klofnað vegna sætaskipunar á framboðslista. Nefndin er fullskipuð að störfum og mun á morgun skila tillögum um skipan listans, eins og alltaf hefur verið stefnt að.
Leó Snær Sveinsson
Formaður Fyrir Heimaey