Styrmir Gunnarsson, fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins, hrósar Pírötum og Birni Leví Gunnarssyni fyrir hugmyndir sínar um að hafa nefndarfundi Alþingis opna og streyma þeim í beinni útsendingu. Segir Styrmir að það muni gjörbreyta starfsháttum Alþingis til hins betra.
Styrmir segir Pírata vekja „vaxandi athygli“ fyrir „góða málefnavinnu á Alþingi“, nokkuð sem eftirmaður Styrmis hjá Morgunblaðinu, sem og flestir Sjálfstæðismenn aðrir hafa ekki viljað taka undir, þvert á móti.
Björn Leví skrifar í Morgunblaðið í dag hvar hann furðar sig á því að ekki skuli vera hægt að opna nefndarfundi, til dæmis með fjármálaráði, sem í dag skilar áliti um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar:
„Nú hef ég setið nokkra fundi þar sem fjármálaráð kynnir álit sitt fyrir fjárlaganefnd og hafa þeir allir verið mjög áhugaverðir og gagnlegir fyrir nefndarmenn. Allir aðrir; þingmenn, fjölmiðlar og þjóðin, þurfa því miður að reiða sig á það hversu duglegir fjárlaganefndarmenn eru að glósa og spyrja til þess að fá nákvæmar upplýsingar um það sem fram kemur í kynningu fjármálaráðs. Því fannst mér og þingmönnum stjórnarandstöðunnar sjálfsagt að biðja um að fundurinn með fjármálaráði yrði opinn öllum, tekinn upp og streymt í beinni útsendingu.“
Þá segir Björn Leví að Píratar hyggist breyta þessu fyrirkomulagi:
„Píratar hafa lagt fram frumvarp á þingi um að nefndarfundir yrðu að jafnaði opnir og streymt í beinni útsendingu. Ástæðan fyrir því er ekki bara gagnsæið sem er nauðsynlegt að stunda til þess að vinna upp traust á störfum þingsins heldur einnig að við upplýsingarnar sem koma fram á fundinum þurfi ekki að treysta á hæfileika nefndarmanna til þess að glósa eða muna hvað var sagt utan að. Það gerist allt of oft að slíkar upplýsingar skolast til og leiða til einhvers konar misskilnings.“
Undir þetta tekur Styrmir Gunnarsson:
„Það er mikilvægt að þessi tillaga Pírata nái fram að ganga. Hún mundi gjörbreyta starfsháttum Alþingis og opna þingið meira fyrir almenningi. En jafnframt skapar hún þinginu stöðu til að stórauka aðhald með framkvæmdavaldinu og ekki veitir af. Þingnefndir kalla nú í vaxandi mæli forstöðumenn einstakra stofnana á sinn fund, þegar fréttir berast, sem benda til að ekki sé allt sem skyldi. Beint sjónvarp frá slíkum yfirheyrslum þingnefnda yfir þeim sem ábyrgð bera í opinbera kerfinu mundi snarlega hafa mikil áhrif. Forstöðumenn stofna og ráðuneyta vilja ekki lenda í slíkri opinberri yfirheyrslu og þess vegna felst í henni mikið aðhald.“