fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Þeistareykjastöð komin í fullan rekstur

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 18. apríl 2018 08:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Önnur vélasamstæða aflstöðvarinnar að Þeistareykjum hefur nú verið tekin í notkun og er því 17. aflstöð Landsvirkjunar komin í fullan rekstur. Um er að ræða fyrstu jarðvarmavirkjunina sem Landsvirkjun reisir frá grunni, en hún samanstendur af tveimur 45 MW vélasamstæðum og er því alls 90 MW. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun.

Þeistareykjastöð var gangsett við hátíðlega athöfn í nóvembermánuði síðastliðnum, þegar fyrsta vélasamstæðan var formlega ræst og tengd við flutningskerfi Landsnets. Framkvæmdir við annan áfanga hafa gengið vel, en önnur vélasamstæðan kom til Þeistareykja fyrir ári síðan, í apríl 2017, og stóð uppsetning hennar yfir fram í lok janúarmánaðar. Frá miðjum febrúar hefur vélasamstæðan verið í tilraunarekstri þar sem öll virkni hennar hefur verið sannreynd, allt þar til nú að Landsvirkjun hefur tekið formlega við rekstri hennar. Framkvæmdin hefur fylgt áætlun frá fyrsta degi en það má einkum rekja til góðrar og árangursríkrar samvinnu allra þeirra sem að henni hafa komið.

Framkvæmdum við Þeistareykjavirkjun fer brátt að ljúka. Gert er ráð fyrir að öllum framkvæmdum, að undanskildum yfirborðsfrágangi, ljúki í byrjun sumars. Vinna við yfirborðsfrágang er í útboðsferli, þar sem tilboð verða opnuð í lok apríl og stefnt á að vinna geti hafist í byrjun júní. Áætlað er að verkinu ljúki í haust og með því lýkur framkvæmdum á Þeistareykjum í bili.

Saga framkvæmda á Þeistareykjum

Frumkvæði að nýtingu náttúruauðlindarinnar á Þeistareykjum kom frá heimamönnum, en sveitarfélög og íbúar stofnuðu Þeistareyki ehf. árið 1999. Landsvirkjun kom fyrst að verkefninu árið 2005 en hefur frá árinu 2011 haft forgöngu um undirbúning og framkvæmd þess.

Rannsóknir á jarðhitasvæðinu á Þeistareykjum teygja sig áratugi aftur í tímann. Við mat á umhverfisáhrifum var miðað við allt að 200 MW virkjun á svæðinu, en núverandi verkefni hefur snúist um byggingu 90 MW virkjunar í tveimur áföngum. Framkvæmdir hafa nú staðið í um 3 ár og frá upphafi hefur meginmarkmiðið verið að reisa hagkvæma og áreiðanlega stöð sem tekur mið af umhverfi sínu og náttúru.

Umhverfisrask lágmarkað

Strax í upphafi voru samskipti við hagsmunaaðila sett í forgang og þá með áherslu á umhverfismál. Skipulagning framkvæmda miðaði að því að lágmarka umhverfisrask eins og kostur var.

Uppgræðsluverkefni var gangsett samhliða undirbúningsframkvæmdum og miðaði að endurheimt beitarlands í stað lands sem fór undir framkvæmdir. Það verkefni er nú á lokastigi. Öll uppgræðsla hefur verið unnin í samvinnu við Landgræðsluna og fulltrúa sveitarfélaga. Gróðurþekja sem fjarlægð hefur verið vegna framkvæmda hefur verið nýtt beint til uppgræðslu og hefur það gefið mjög góða raun og er, ásamt endurheimt á beitarlandi, okkar stolt í umhverfismálum á Þeistareykjum.

Umhverfisvöktun hófst samhliða undirbúningsframkvæmdum, en hún felst í kortlagningu á grunnástandi náttúrunnar við upphaf framkvæmda, sem síðan notast við mat á mögulegum breytingum á byggingartíma og áfram í gegnum rekstur stöðvarinnar.

Samskipti

Sérstök áhersla hefur verið lögð á samskipti við hagsmunaaðila á svæðinu, en bændur hafa nýtt Þeistareyki sem beitarland í áratugi og á því varð engin breyting við framkvæmdirnar. Þá var efnt til samvinnu við aðila í ferðaþjónustu um skipulagningu ferðamennsku á framkvæmdatíma, þannig að báðir aðilar gætu vel við unað.

Landsvirkjun hefur í tvígang boðið gestum og gangandi í heimsókn á Þeistareyki til að fylgjast með framkvæmum, fyrst sumarið 2016 og svo aftur í júlí 2017. Yfir 300 manns komu í hvort skipti og var almenn ánægja með heimsóknina.

Hugmyndasamkeppni um hannað verk eða listaverk

Efnt hefur verið til hugmyndasamkeppni um verk sem staðsett verður í víðáttumikilli náttúru Þeistareykja. Samkeppnin er haldin í samvinnu Landsvirkjunar og Hönnunarmiðstöðvar Íslands, en óskað er eftir tillögum að hönnuðu verki eða listaverki sem fellur vel að umhverfinu og eykur upplifun þeirra sem um það fara. Allir áhugasamir eru hvattir til þess að taka þátt í samkeppninni og nýta sér leiðsögn sem verður um svæðið á keppnistíma.

Tillögum skal skila fyrir 1. júní 2018 og er heildarverðlaunafé 3,5 milljónir króna, en nánari upplýsingar eru á www.landsvirkjun.is/samkeppni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Birgir í klemmu

Orðið á götunni: Birgir í klemmu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“