fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Skuldaviðmið Reykjanesbæjar lækkar um tæp 20%

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 17. apríl 2018 21:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tekjur Reykjanesbæjar aukast, skuldir lækka og afgangur hefur aldrei verið meiri. Þetta var ljóst eftir fyrri umræðu ársreiknings Reykjanesbæjar fyrir árið 2017 á bæjarstjórnarfundi sem lauk í kvöld. Á milli áranna 2016 og 2017 lækkaði skuldaviðmiðið úr 208,5% í 189,55%.

Ársreikningur samstæðu Reykjanesbæjar 2017 var lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Reykjanesbæjar þriðjudaginn 17. apríl. Í honum kemur fram að útsvarstekjur aukast verulega á milli ára m.a. vegna aukins íbúafjölda, skuldir og skuldbindingar lækka lítillega og afgangur af reglubundnum rekstri hefur aldrei verið meiri.

Samkvæmt rekstrarreikningi A-hluta bæjarsjóðs nam afgangur af rekstri 1.222 milljónum króna. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld nam 2.203 milljónum króna. Eigið fé bæjarsjóðs í árslok 2017 nam 5.079 milljónum króna og er eiginfjárhlutfallið 14,97%. Samkvæmt efnahagsreikningi nema veltufjármunir 8.749 milljónum króna, skammtímaskuldir 5.688 milljónum króna og veltufjárhlutfall 1,54. Heildarskuldir og skuldbindingar bæjarsjóðs nema 28.850 milljónum króna og er skuldaviðmið 163,38%.

Samkvæmt rekstrarreikningi samstæðu A og B hluta nam hagnaður af rekstri 1.321 milljón króna. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld nam 3.781 milljón króna. Eigið fé samstæðu A og B hluta í árslok 2017 nam 14.202 milljónum króna og er eiginfjárhlutfallið 24,41%. Samkvæmt efnahagsreikningi nema veltufjármunir 7.086 milljónum króna, skammtímaskuldir 7.899 milljónum króna og veltufjárhlutfall 0,9. Heildarskuldir og skuldbindingar samstæðu A og B hluta nema 43.972 milljónum króna og lækka á milli ára. Skuldaviðmið fer úr 208,5% í 189,55%.

Bæjarráð og bæjarstjórn Reykjanesbæjar létu gera óháða fjárhagslega úttekt á rekstri bæjarins á árinu 2014. Afrakstur þeirrar vinnu kallast Sóknin og felur í sér fjóra þætti; í fyrsta lagi að auka framlegð í rekstri A-hluta, í öðru lagi að halda fjárfestingum í nýjum innviðum í lágmarki, í þriðja lagi að endurskipuleggja efnahag sveitarfélagsins og í fjórða lagi að stöðva fjárstreymi frá A-hluta yfir í B-hluta og gera B-hluta stofnanir og fyrirtæki sjálfbær.

Á árinu 2017 náðust samningar við kröfuhafa Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar um endurskipulagningu efnahags. Reykjanesbær tók lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga á árinu 2017 sem nýtt var til að greiða upp langtímaskuldir hafnarinnar fyrir utan skuld hennar við Lánasjóð sveitarfélaga. Því til viðbótar nýtti Reykjanesbær nokkur hundruð milljónir af handbæru fé til að ljúka uppgjöri við kröfuhafa hafnarinnar.

Í aðlögunaráætlun fyrir árin 2017 til 2022 er gert ráð fyrir að sveitafélagið nái undir 150% skuldaviðmið fyrir árslok 2022.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“