Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG, segir við Fréttablaðið í dag að hún styðji ekki hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands í Sýrlandi, sem ríkisstjórn Íslands hefur lagt blessun sína yfir í gegnum NATO:
„Hernaðaraðgerðir koma ekki á friði. Pólitískar viðræður og diplómatískar lausnir koma á friði. Ég er enn andsnúin þessum aðgerðum og hef ekkert breytt afstöðu minni þrátt fyrir fundinn,“
segir Rósa, en rætt var um stöðu mála á fundi utanríkismálanefndar í gærkvöldi, þar sem Guðlaugur Þór Þórðarson ræddi stöðuna í Sýrlandi. NATO kom ekki að aðgerðunum sjálfum, en lýsti þó yfir stuðningi sínum við þær og er Ísland þar á meðal þjóða. Vinstri grænir eru sagðir í erfiðri stöðu, þar sem hvers kyns hernaðarbrölt gengur gegn stefnu flokksins:
„Stefna VG verður að koma fram með skýrari hætti í utanríkisstefnu Íslands, það er mín skoðun og ég mun ekki hvika frá henni. Ég hef fundið fyrir miklum stuðningi við þau sjónarmið sem ég hef haldið á lofti,“
segir Rósa og bætti við að hún hefði fengið mikið af skilaboðum og stuðningi við sín sjónarmið frá flokksfélögum.
Rósa Björk, ásamt Andrési Inga Jónssyni, studdi ekki ríkisstjórnarsamstarfið í byrjun kjörtímabils og kallaði eftir vantrausti á Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra eins og kunnugt er.