fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Erlendum farþegum fjölgaði um þrjú prósent í mars

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 11. apríl 2018 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brottfarir erlendra farþega um Keflavíkurflugvöll voru um 173 þúsund talsins í mars síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu og Isavia í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða um 5.200 fleiri en í mars á síðasta ári. Aukningin nemur 3,1% milli ára, nokkru minni en mælst hefur í mars síðustu árin. Bandaríkjamenn og Bretar voru fjölmennastir í mars en þeim fækkar á milli ára.

Hlutfallsleg aukning milli ára er minni í mars en aðra mánuði vetrarins og sé litið til vetrarins í heild (nóvember-mars) má sjá verulega minni fjölgun en síðustu ár. Þannig var aukning yfir vetrarmánuðina nú 7% á milli ára, samanborið við 59% milli vetrarins 2015-16 til 2016-17.

Frá áramótum hafa 307.600 erlendir farþegar farið úr landi um Keflavíkurflugvöll sem er 8,2% aukning miðað við sama tímabil í fyrra.

 

3% fjölgun erlendra farþega mars - Dregur úr aukningu yfir veturinn

 


Dregur úr fjölgun í mars

12 fjölmennustu þjóðerni

Fjölgun brottfara í mars á milli ára er nú minni en verið hefur á síðustu árum. Frá 2014 til 2017 var aukningin á bilinu 27 til 45% á milli ára en er 3% nú. Þetta er sama þróun og gætt hefur aðra vetrarmánuði en hlutfallsleg aukning milli ára er þó minni í mars en aðra mánuði vetrarins.

Bandaríkjamenn og Bretar um 44%

Á grafinu hér til hliðar má sjá 12 fjölmennustu þjóðernin í mars. Brottfarir Breta og Bandaríkjamanna voru 44,2% af heild og athyglisvert er að fækkun er frá báðum mörkuðum. Sem sjá má á grafinu er fækkun frá 6 af 12 fjölmennustu þjóðernunum. Hlutfallslega er mest fjölgun í brottförum Pólverja sem voru næstum tvöfalt fleiri í mars í ár en í fyrra en sem fyrr má leiða líkum að því að það sé í talsverðu mæli umferð pólskra ríkisborgara sem hér eru búsettir atvinnu sinnar vegna.

 

Minni fjölgun yfir veturinn

Sé veturinn í heild skoðaður (nóvember-mars) má glögglega sjá að ákveðin breyting hefur orðið í þeirri fjölgun sem verið hefur síðustu ár. Á myndinni hér til hliðar má sjá samanburð fjögur ár aftur í tímann, sem sýnir þetta vel. Nú í vetur varð þannig 7% aukning á milli ára en á sama tíma fyrir ári síðan var hún tæp 60%. Næstu tvo vetur þar á undan hafði aukning á milli ára verið rúm 30%.

 

Bretum fækkar

Sé breytingin skoðuð nánar eftir mörkuðum má sjá að fækkun er nú á milli ára yfir veturinn frá Bretlandi og aðeins 3% aukning frá Bandaríkjunum, tveimur af stærstu mörkuðunum. Aukning á milli ára er mest hjá þeim sem flokkast undir „annað“ en þar undir eru meðal annars Asíubúar og Austur-Evrópuþjóðir. Nánari skiptingu þess hóps má sjá á skífuritinu hér neðar á síðunni. Hlutfallslega er nú minni aukning yfir veturinn á milli ára frá stærstu markaðssvæðunum en verið hefur síðustu ár þar á undan.

Breytt samsetning

Þegar hlutfallsleg samsetning brottfara er skoðuð síðastliðna fimm vetur má sjá að hún hefur breyst nokkuð eins og sjá má af grafinu hér til hliðar. Norður-Ameríkanar voru 25% af heild veturinn 2017-18 og 26% veturinn 2016-17 sem er nokkuð hærri hlutdeild en veturna þrjá á undan. Hlutdeild Breta var hins vegar ríflega þriðjungur fyrstu þrjá veturna en í kringum fjórðungur síðustu tvo vetur. Norðurlandabúar hafa verið 6% af heild síðastliðna tvo vetur en hlutdeild þeirra að vetri hefur hins vegar minnkað.

 

Betri greining með fjölgun þjóðerna í talningu

Sá hópur sem hefur stækkað hvað mest samanstendur af ,,öðrum þjóðernum“ en þar á meðal eru Asíuþjóðir s.s. Kínverjar en fjöldi þeirra að vetri hefur ríflega fjórfaldast síðustu fimm ár. Til að fá betri mynd af samsetningu farþega var þjóðernum fjölgað úr 17 í 32 í júní á síðasta ári, en þar var meðal annars bætt við Hong Kong búum, Indverjum, Singapúr-búum, Suður-Kóreumönnum og Taívönum. Niðurstöður úr talningum sýna að 10% farþega nú í vetur má rekja til Japana og Suðaustur-Asíubúa og 6% til A-Evrópubúa.

 

 

Ferðir Íslendinga utan

Um 56.700 Íslendingar fóru utan í mars í ár eða 38,9% fleiri en í mars 2017. Samtals voru brottfarir Íslendinga í janúar, febrúar og mars um 136 þúsund talsins eða 20% fleiri en á sama tímabili árið 2017.

Nánari upplýsingar

Talning Ferðamálastofu og Isavia er hugsuð sem viðbótarupplýsingar við farþegatölur Isavia til að geta greint fjölda ferðamanna til landsins eftir þjóðernum. Um er að ræða handtalningu áður en komið er inn á brottfararsvæði og vert er að hafa í huga að með þessari aðferð ná talningarnar yfir alla sem fara í gegnum öryggisleit. Tölurnar ber því að skoða með þeim fyrirvörum sem aðferðafræðin felur í sér. Þó ber að ítreka að flestir skiptifarþegar eru ekki inn í þessum tölum.
Niðurstöður úr könnun sem Isavia hefur látið framkvæma meðal brottfararfarþega tvívegis á árinu, annars vegar yfir hásumarið (júlí-ágúst) og hins vegar í nóvember gefa til kynna að 86,3% brottfararfarþega yfir hásumarið og 92,1% í nóvember voru að heimsækja Ísland í persónulegum eða viðskiptalegum tilgangi. Þeir sem voru erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis til skemmri eða lengri tíma reyndust 2,7% brottfara yfir hásumarið og 4,7% í nóvember. Þeir sem millilentu án þess að fara út af flugvellinum reyndust 4,8% yfir hásumarið og 1,7% í nóvember en þeir sem millilentu og nýttu tækifærið til að fara út af flugvellinum og heimsækja einhverja staði reyndust 6,2% yfir hásumarið og 1,6% í nóvember. Sjá nánar

Skiptingu milli þjóðerna má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Ferðamenn mars 2018

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Birgir í klemmu

Orðið á götunni: Birgir í klemmu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“