Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hefur einangrast á Alþingi vegna Klaustur Bar málsins. Forystumenn stjórnarflokkanna vilja ekki lengur funda með honum og eru hættir að bjóða honum á reglulega samráðsfundi.
Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV í kvöld. Logi Einarsson formaður Samfylkingar segir mikið vantraust ríkja í garð Sigmundar Davíðs og menn séu nú hættir að bjóða honum á reglulega samráðsfundi stjórnarandstöðuflokka. „Ég hef ekki sem formaður stærsta stjórnarandstöðuflokksins treyst mér til þess að senda fundarboð á formann Miðflokksins,“ segir Logi.
Pistill sem Sigmundur birti í morgun þar sem hann bregst við viðtali Lilju Alfreðsdóttur í Kastljósi í gærkvöld hefur mælst fremur illa fyrir. Í viðtali við Morgunblaðið fer Andrés Jónsson, almannatengill, eftirfarandi orðum um viðbrögð Sigmundar Davíðs:
„Hann slær áfram í og úr, skensar hana fyrir að taka svona til orða og er með ótrúverðugar fullyrðingar, í ljósi þess sem við erum búin að heyra, um að hann tali nú annars fallega um hana.“
„Hann var farinn að ná vopnum sínum, en svo kom Lilja. Hún hafði ekki veitt nein viðtöl fram að þessu og enn grófari bútar úr upptökunni höfðu verið birtir. Hún, sem hafði staðið þeim svo nærri og unnið með þeim í pólitík, veitti þeim ákveðið rothögg með því að taka svona sterkt til orða, sem er algerlega í samræmi við hvernig hún upplifir málið.“
Andrés segir að Sigmundur Davíð verði að sýna að hugur fylgi máli til að rétta stöðu sína. Fyrirvarar á afsökunarbeiðni og útskýringar og réttlætingar mælist illa fyrir.