fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

Hörður segir ekki „heila brú“ í málflutningi verkalýðshreyfingarinnar: „Hversu oft er hægt að lýsa yfir stríði?“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 21. desember 2018 09:46

Hörður Ægisson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hörður Ægisson, ritstjóri Markaðarins, er harðorður í garð forystu verkalýðshreyfingarinnar í leiðara Fréttablaðsins í dag. Hann segir stríðsyfirlýsingar Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR, vera kunnuglegt stef og að forystan, sem hann segir umboðslausa til að boða sínar byltingar og kerfisbreytingar, sæki vísvitandi í átök:

„Hversu oft er hægt að lýsa yfir stríði? Hjá forystumönnum verkalýðshreyfingarinnar þarf tilefnið oft ekki að vera mikið. Þau ummæli fjármálaráðherra að áform um lækkun tekjuskatts yrðu endurskoðuð ef samið verður um óábyrgar launahækkanir jafngiltu, að mati formanns VR, stríðsyfirlýsingu. Þetta er orðið kunnuglegt stef. Ólíkt þeim sem nú ráða innan stéttarfélaganna – og skeyta lítt um hagfræðileg lögmál – þá ber stjórnvöldum skylda til að gæta að stöðugleika. Verði niðurstaða kjarasamninga í líkingu við þær launakröfur sem verkalýðsfélögin hafa sett fram munu afleiðingarnar birtast í frekari gengisveikingu og enn hærri verðbólgu. Við slíkar aðstæður er það ekki valkostur fyrir ríkisstjórnina og Seðlabankann að sitja aðgerðalaus hjá.“

Samstaðan að bresta

Hörður segir að ekki komi neinum á óvart að samstaðan sé að bresta innan verkalýðshreyfingarinnar þar sem æ fleiri sjá að þeir eigi ekki samleið með þeim sem tala hvað herskáast, en Efling og Verkalýðsfélag Akraness hafa dregið sig frá Starfsgreinasambandinu og hyggjast sækja fram ásamt VR í komandi kjarasamningum:

„Í huga þeirra virðast það vera átökin sem slík, byggt á óljósum hugmyndum um marxískt stéttastríð, sem eru markmiðið fremur en að ná kjarasamningum. Meginþorri almennings veit vel að þessi málstaður gengur í berhögg við hagsmuni launafólks. Hann hefur nú þegar orðið vitni að því á síðustu mánuðum þar sem gengi krónunnar hefur gefið verulega eftir og verðbólga aukist. Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði, hefur réttilega bent á að „róttækni í orðum“ geti „hæglega orðið til þess að krónan veikist enn meira í vetur, sem bitnar mest á umbjóðendum verkalýðsfélaganna, sem er almenningur í landinu“. Forystufólk Eflingar og VR getur sagst vera ósammála því að málflutningur þess hafi átt þátt í veikingu krónunnar, án þess að færa fyrir því nein efnisleg rök, en það breytir engu um staðreyndir málsins – heldur opinberar aðeins innantómt lýðskrumið sem þau standa fyrir.“

Hörður nefnir að nú þegar fyrirtæki haldi að sér höndum eftir fordæmalausa uppsveiflu, sé staðan brothætt. Því geti vanhugsaðar ákvarðanir gert stöðuna verri:

„Aðilar vinnumarkaðarins, bæði fulltrúar vinnuveitenda og verkalýðshreyfingarinnar, bera þess vegna ríka ábyrgð. Því miður rísa sumir þeirra ekki undir henni og fara fram með ósamrýmanlegar kröfur um tugprósenta launahækkanir á sama tíma og þess er krafist að vextir lækki og verðtrygging verði afnumin. Það er ekki heil brú í þessum málflutningi.“

Umboðslausar kerfisbreytingar

Þá segir Hörður að forysta verkalýðshreyfingarinnar hafi ekkert umboð til þeirra byltingar sem hún boðar:

„Verkefnið sem við stöndum nú frammi fyrir er að eyðileggja ekki árangur liðinna ára. Það er hins vegar ekki, eins og má skilja af fulltrúum helstu verkalýðsfélaganna, að ráðast í pólitískar kerfisbreytingar og umbylta íslensku samfélagi. Til þess voru þeir ekki kjörnir, né hafa til þess nokkurt umboð, ekki fremur en þegar sama fólk bauð sig fram til Alþingis – og með sömu hugmyndir að leiðarljósi – undir merkjum stjórnmálaaflsins Dögunar og hlaut þriggja prósenta fylgi. Staðreyndin er sú, sem forysta hinnar nýju verkalýðshreyfingar mætti stundum hafa hugfast, að eftirspurn eftir hugmyndum hennar er minni en hún heldur. Vonandi finnur hún frið í hjarta yfir jólin.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma