Þeir sem fjárfestu í WOW air í haust í skuldabréfaútboði félagsins, eru ekki í eins slæmri stöðu og óttast var í fyrstu. Skilmálabreytingarnar á skuldabréfaútgáfunni eru sagðar mun betri en búist var við í lok síðasta mánaðar. Morgunblaðið greinir frá.
Vaxtakjör munu haldast óbreytt og ekki verður farið fram á lækkun höfuðstóls bréfanna, en munu skuldabréfaeigendur þurfa að aflétta veðum sem þeir áttu í WOW air og er hagnaðarvon þeirra varðandi skráningu WOW air á markaði, fyrir bý.
Indogo Partners vinnur nú að samkomulagi við WOW air um fjárfestingu í félaginu fyrir 9,4 milljarða króna, en hún er háð ýmsum skilyrðum á borð við niðurstöðu áreiðanleikakönnunar, og samþykki skuldabréfaeigenda WOW air á skilmálabreytingum bréfanna. Samkvæmt Morgunblaðinu meta skuldabréfaeigendur stöðuna þannig að ekki þurfi að komi til afskrifta, en vaxtakjörin eru sögð góð, um 9 prósent, sem samsvarar 14 prósent krónuvöxtum vegna vaxtamunar.