fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Mesti samdráttur í kortaveltu á Íslandi í átta ár

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 18. desember 2018 12:40

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kortavelta íslenskra heimila innanlands hefur skroppið saman að raungildi undanfarna mánuði frá sama tímabili í fyrra. Þróun kortaveltu í heild bendir til þess að íslensk heimili auki lítið við neyslu sína nú um stundir eftir myndarlegan vöxt síðustu misserin. Þótt heimilin stígi þannig ekki beinlínis á bremsuna í útgjöldum þessa dagana hefur neyslufóturinn færst af bensíngjöfinni á kúplinguna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka.

Samkvæmt nýlegum tölum Seðlabanka Íslands um greiðslumiðlun nam heildarvelta innlendra greiðslukorta 79,6 mö.kr. í nóvember síðastliðnum. Er það 0,7% aukning í krónum talið frá sama mánuði í fyrra. Athygli vekur að velta debetkorta minnkaði um ríflega 8% á milli ára á meðan velta kreditkorta jókst um 9% á sama tíma.

Einkaneysluvöllur á útivelli

Undanfarin ár hefur verið mikill munur á þróun innlendrar og erlendrar kortaveltu íslenskra heimila. Sé innlenda kortaveltan raunvirt með vísitölu neysluverðs án húsnæðis en sú erlenda með gengisvísitölu kemur á daginn að allt fram á haustið 2018 var myndarlegur vöxtur í erlendri kortaveltu á meðan vöxtur í veltu innan landhelginnar hefur verið hægur síðustu misserin. Raunar hefur innlend kortavelta dregist lítillega saman síðustu mánuði á framangreindan kvarða. Þessi ólíka þróun endurspeglar að mati okkar bæði aukinn hlut alþjóðlegrar netverslunar í neyslu landsmanna og einnig vaxandi ferðagleði landans. Hins vegar brá svo við í nóvember að erlend kortavelta minnkaði örlítið að raungildi frá sama tíma 2017. Hefur erlenda veltan ekki minnkað á þann mælikvarða frá árinu 2012.

Samanlagt skrapp kortavelta íslenskra heimila saman um ríflega 3% að raungildi í nóvember síðastliðnum. Hefur ekki mælst meiri samdráttur á þennan mælikvarða í 8 ár, en vert er að hafa í huga að talsverðar sveiflur eru milli einstakra mánaða í kortaveltunni. Þróun síðustu mánaða ber þess þó skýr merki að verulega hefur dregið úr raunvexti kortaveltu íslenskra heimila.

Stendur einkaneysla í stað á lokafjórðungi ársins?

Líkt og við fjölluðum um nýverið kom mæling Hagstofu á einkaneyslu á 3. ársfjórðungi okkur talsvert á óvart. Neysla íslenskra heimila jókst um 5,3% á 3F frá sama fjórðungi í fyrra samkvæmt Hagstofunni á sama tíma og þeir hagvísar sem gleggsta mynd gefa af þróun einkaneyslu bentu til talsvert minni vaxtar. Umfjöllun Hagstofunnar um einkaneysluna í tengslum við framangreindar tölur var stutt og laggóð, og engar sérstakar skýringar er þar að finna á því hver rótin er að þessari ólíku þróun einkaneyslu og hagvísa á borð við kortaveltu á fjórðungnum.

Það sem af er lokafjórðungi ársins benda helstu einkaneyslutengdu hagvísar á borð við raunþróun kortaveltu, Væntingavísitölu Gallup og nýskráningar bifreiða til þess að einkaneysluvöxtur sé lítill sem enginn á tímabilinu. Er þróunin það afgerandi að við teljum að hún hljóti að endurspeglast í tölum Hagstofunnar fyrir 4F 2018, en þær verða birtar þær 1. mars næstkomandi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki