„Með ákvörðun Hæstaréttar, um að hafna beiðni ríkissaksóknara um áfrýjunarleyfi, lýkur 16 ára sögu málareksturs íslenska ríkisins gagnvart mér. Ég hef legið undir grun, sætt ákærum eða verið sakborningur í dómsmálum við ríkið samfellt í 5992 daga.“
Þetta segir Jón Ásgeir Jóhannesson kaupsýslumaður. Tilefnið er að Hæstiréttur hefur hafnað umsókn ríkissaksóknara um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar í Aurum-málinu, fjársvikamáli sem Jón Ásgeir hefur verið sýknaður í. Málinu er þar með endanlega lokið.
Jón Ásgeir fer yfir sögur málsókna og lögreglurannsókna gegn sér undanfarin 16 ár í grein sem hann birtir í Fréttablaðinu. Jón var tvisvar sýknaður af öllum ákæruatriðum fyrir fjölskipuðum héraðsdómi líkt og segir í greininni og málið fór auk þess fyrir Hæstarétt og nú síðast fyrir Landsdóm þar sem Jón Ásgeir var sýknaður í fjórða skiptið. Málið tók sex ár í réttarkerfinu. Um Aurum-málið segir Jón Ásgeir meðal annars:
„Ég lít svo á að Aurum-málið hafi verið sérstaklega gróf aðför að mér sem einstaklingi þar sem sérstakur saksóknari Ólafur Hauksson og rannsakendurnir Grímur Grímsson og Sveinn Ingiberg Magnússon leyfðu sér að halda undan mikilvægum gögnum í því skyni að koma sök á mig.“
Jón er einnig þungorður í garð slitastjórnar Glitnis sem hann segir hafa kært málið til lögreglu án þess að skoða það. Þá gagnrýnir hann einnig slitastjórn Glitnis og vill að farið sé í saumana á því hvort þau hafi blekkt yfirvöld til að koma á hann höggi.
Málin voru foreldrum hans þungbær
Jón Ásgeir telur að hann hafi orðið að þola þungar raunir af hálfu opinberra aðila að ósekju og vonast til íslensk stjórnvöld dragi lærdóm af þessum málarekstri öllum. Hann skrifar:
„Þessi sextán ára málarekstur hefur verið mér þung byrði, bæði andlega og fjárhagslega, en ekki síður fyrir fjölskylduna mína. Öll þessi mál reyndu mikið á foreldra mína en þau eru bæði látin og fá því miður ekki að upplifa þessi málalok.
Að lenda í klóm ákæruvalds er erfitt. Maður upplifir sig smáan í samanburði við þá sem hafa allt valdið og alla sjóði ríkisins á bak við sig. Ég upplifði þá mörgu menn sem rannsökuðu og sóttu málin á hendur mér síðustu 16 árin þannig að þeir hefðu engan áhuga á að heyra eðlilegar skýringar á atvikum. Öll mál voru rannsökuð eins og sekt væri fyrirfram gefin niðurstaða. Ég sat 260 klukkustundir í yfirheyrslum og man ekki eftir því að hafa fengið spurningar frá rannsakendum eða saksóknurum um atriði sem væru mér í hag.“
Hér má lesa pistil Jóns Ásgeirs í heild sinni.