fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Ísland er best í heimi í kynjajafnrétti tíunda árið í röð: „Við eigum enn verk að vinna“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 18. desember 2018 11:29

Katrín Jakobsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tíunda árið í röð trónir Ísland á toppnum á lista Alþjóðaefnhagsráðsins (World Economic Forum) yfir ríki þar sem kynjajafnrétti mælist mest. Listinn var birtur í morgun og næst á eftir Íslandi eru Noregur, Svíþjóð og Finnland.

Framfarir í jafnréttismálum eru sagðar hægar á heimsvísu og bendir niðurstaðan til þess að það muni taka 108 ár að ná fullu jafnrétti karla og kvenna í heiminum. Úttektin nær til velflestra landa og leggur mat á jafnrétti kynja í stjórnmálum, menntun, atvinnu og heilbrigði. Í kynningu á niðurstöðum er sérstaklega fjallað um hvað ræður góðri frammistöðu Íslendinga á þessu sviði. Utanríkisráðuneytið, Velferðarráðuneytið og Forsætisráðuneytið sendir frá sér sameiginlega tilkynningu þessa efnis í dag.

Vægi jafnréttismála hefur aukist verulega á alþjóðavettvangi undanfarin ár og er litið til Íslands sem fyrirmyndar hvað varðar löggjöf og þróun málaflokksins á heimsvísu. Jafnrétti er lykiláhersla stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og hefur verið unnið ötullega að áframhaldandi framförum á því sviði bæði heima fyrir og á alþjóðavettvangi.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir lista Alþjóðaefnahagsráðsins endurspegla það mikla starf sem hefur verið unnið í þágu jafnréttismála á Íslandi; á vettvangi stjórnvalda, innan fræðanna og í grasrótinni.

„Við eigum kvennahreyfingunni á Íslandi mikið að þakka fyrir að hafa rutt brautina og þrýst á breytingar í samfélaginu. Lykilatriðið er að skilja að jafnrétti kynjanna er ekki náð og að það kemur ekki af sjálfu sér. Þegar ég er spurð um árangur Íslands á alþjóðavettvangi nefni ég oft almenna leikskóla og fæðingarorlof sem lykilstefnumál. En síðan vitum við líka að ofbeldi gegn konum er bæði orsök og afleiðing kynjamisréttis og það hefur okkur því miður ekki tekist að uppræta hér á landi. Við eigum enn verk að vinna og ég hlakka til að leiða þennan málaflokk fyrir hönd ríkisstjórnarinnar næstu árin.”

Jafnrétti sérstakt áherslumál í þróunarsamvinnu

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra segir gleðilegt að Ísland skuli áfram verma toppsætið á listanum en því fylgi jafnframt mikil ábyrgð. „Ísland hefur um árabil lagt ríka áherslu á jafnréttismál sem grundvallarmannréttindi og forsendu framfara og þróunar, líkt og við þekkjum úr okkar eigin samfélagi,“ segir Guðlaugur. „Við viljum vera öðrum þjóðum til fyrirmyndar á þessu sviði jafnframt því að miðla af reynslu okkar og sérþekkingu. Málflutningur Íslands á alþjóðavettvangi fær hljómgrunn vegna þessarar góðu stöðu og seta okkar í mannréttindaráðinu hefur gefið tilefni til að láta enn frekar til okkar taka.“

Guðlaugur segir Ísland jafnframt vinna að valdeflingu og virðingu fyrir réttindum kvenna í friðar- og öryggismálum og í þróunarsamvinnu. Í tillögu til þingsályktunar um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2019-2023, sem lögð var fram á Alþingi fyrir stuttu, eru mannréttindi, jafnrétti kynjanna og sjálfbær þróun leiðarljós í þróunarsamvinnu. Í fyrsta skipti er kynjajafnrétti og valdefling kvenna sérstakt áherslusvið.

Á næsta ári hækkar framlag til þróunarsamvinnuverkefna sem stuðla að jafnrétti og valdeflingu kvenna um þriðjung en þau nema um 12% af heildarframlagi Íslands til þróunarsamvinnu það sem af er þessu ári. Ísland er meðal annars stærsti stuðningsaðili Stofnunar Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (UN Women) miðað við íbúafjölda og heldur úti Jafnréttisskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Þá verður aukin áhersla lögð á jafnréttisverkefni í tvíhliða samstarfslöndum Íslands í þróunarsamvinnu, Malaví og Úganda.

Jafnréttismálin í forsætisráðuneytið

Í byrjun ársins 2019 verða jafnréttismálin flutt í forsætisráðuneytið til að auka vægi þeirra og framfylgja enn betur samþættingu jafnréttismála í stefnu ríkisstjórnarinnar. Jafnréttismálin snerta starfssvið allra ráðuneyta og fara mörg þeirra með viðamikla málaflokka sem geta haft mikil áhrif á stöðu og þróun málaflokksins hér á landi. Ný skrifstofa jafnréttismála í Stjórnarráðinu mun hafa umsjón með framtíðarstefnumótun í jafnréttismálum og er ætlað miðlægt hlutverk við að leiða og samhæfa jafnréttisstarf stjórnvalda. Forgangsverkefni verður að vinna við endurskoðun jafnréttislaga og útvíkkun jafnréttishugtaksins í samhengi við alþjóðalega þróun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Hartman í Val
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG