Að þessum fyrirvörum gerðum er áhugavert að skoða verðþróun undanfarnar vikur. Tekin voru skjáskot af flugmiðaverði til fjögurra algengra áfangastaða Wow og Icelandair, annars vegar 5. nóvember, eða daginn sem tilkynnt var um mögulegan samruna félaganna og hins vegar 14. desember. Í báðum tilfellum var skoðað lægsta mögulega verð fram og til baka, eins og það birtist á vefnum, óháð farangri, fyrir vikulanga dvöl sem hæfist nákvæmlega mánuði síðar. Verð til þessara fjögurra áfangastaða hækkaði um 35% að meðaltali á tímabilinu, Wow um 65% og Icelandair um 19%. Mest hækkaði verð á flugleiðinni til Parísar, eða um 266% hjá Wow og 32% hjá Icelandair. Þá lækka bæði Wow og Icelandair verð á flugleiðinni til London.“