Björgólfur Thor Björgólfsson var sýknaður í Landsrétti af 600 milljóna króna bótakröfu tveggja fyrirtækja sem Kristján Loftsson stýrir. RÚV greinir frá þessu. Kristján sem hefur stýrt Hval ehf og var tekjuhæsti einstaklingurinn í Sjávarútvegi og Landbúnaði á þessu ári tapaði málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Kristján var einnig í fréttum fyrr á árinu þegar hann seldi rúmlega þriðjungshlut í HP Granda fyrir 21,7 milljarða.
Félög Kristjáns, Vogun HF krafðist 366 milljóna króna og Fiskveiðihlutafélagið Venus HF 238 milljóna. Var það gert á þeim forsendum að Samson eignarhaldsfélag var meirihlutaeigandi í Landsbankanum fyrir hrun. Félög Kristjáns höfðu keypt hlutabréf í bankanum sem urðu verðlaus þegar bankakerfið hrundi haustið 2008 og ákvað Kristján að höfða mál vegna þessa.
Landsréttur staðfesti dóm Héraðsdóms um að málið væri fyrnt.