„Á meðal margra stjórnmálamanna ríkir skrýtið, jafnvel fordómafullt, viðhorf í garð fjármálafyrirtækja.“
Þetta segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ritari Sjálfsflokksins og formaður utanríkismálanefndar í pistli á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins. Þar segir hún banka og fjármálastofnanir verða fyrir fordómum. Hún bendir á að ríkissjóður eigi um 300 milljarða króna bundna í bankakerfinu. Áhættan sé mikil og það þurfi að tryggja að bankarnir geti starfað í eðlilegu umhverf. Áslaug Arna segir:
„Tíu árum eftir fall þriggja banka eru margir enn á þeirri skoðun að það eigi að refsa bönkunum með sköttum og setja á þá sérstakar reglugerðir og sérstaka skatta til að koma í veg fyrir annað hrun. Á sama tíma er ætlast til þess að þeir lækki vexti og veiti hagkvæma og góða þjónustu. Þeir sem benda á öfugmælin við þróun eru sakaðir um að vera málsvarar fjármálaafla og þeim gerðar upp annarlegar hvatir. Líklega þarf sú sem hér skrifað að sæta því eftir birtingu þessa pistils. Þetta er ekkert annað en ódýr popúlismi og það sjá allir skynsamir einstaklingar“.
Vilhjálmur Birgisson verkalýðsleiðtogi er afar ósáttur við skrif Áslaugar og gagnrýnir þau harðlega á samskiptamiðlum.
„Barið á bönkunum, eru sjálfstæðismenn ekki að grínast, en viðskiptabankarnir þrír sem ollu bankahruninu er að skríða í að vera búnir að skila 800 milljarða hagnaði frá hruni,“ segir Vilhjálmur og bætir við:
„Þeir áttu stóran þátt í því að 10 þúsund fjölskyldur misstu húsnæði sitt i kjölfar hrunsins og bara á síðasta ári skiluðu viðskiptabankarnir þrír tæpum 50 milljörðum í hagnað eftir skatta. En það eru 20 milljarða meiri en sameiginlegur hagnaður 27 stærstu sjávarútvegsfyrirtækja á Íslandi.“
Vilhjálmur heldur áfram:
„Hugsið ykkur að þrír bankar sem hafa það eitt hlutverk að lána og geyma peninga skuli skila 20 milljörðum meira í hagnað í fyrra en 30 stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins.“
Þá segir Vilhjálmur Sjálfstæðisflokkinn verja sérhagsmunahópa með kjafti og klóm.
„Alltaf er maður að sjá það betur og betur hvernig Sjálfstæðisflokkurinn ver sérhagsmunahópanna sína með kjafti og klóm, en er á sama tíma tilbúinn að fórna alþýðunni og íslenskum heimilum í þeirri sérhagsmunagæslu.“