Indigo Partners og WOW air hafa komist að samkomulagi um að bandaríska fjárfestingarfélagið leggi WOW til 75 milljónir Bandaríkjadala, eða 9,4 milljarða króna. Þetta kemur fram á heimasíðu WOW.
Áreiðanleikakönnun stendur enn yfir, en félögin munu ganga frá málinu um leið og hún liggur fyrir. Indigo mun kaupa hlutabréf í WOW air en einnig er til skoðunar að gefa út breytanlegt skuldabréf til félagsins. Fjárfesting Indigo er þó einnig háð niðurstöðu viðræðna við skuldabréfaeigendur WOW air, en það er komið í skriflegt ferli, sem lýkur 17. janúar. Skilyrði fyrir fjárfestingunni er að skuldabréfaeigendur samþykki niðurfellingu á breytirétti að hlutafé WOW air.