fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Fylgi Miðflokksins hrynur – Framsókn rýkur upp

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 14. desember 2018 10:44

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins. Samsett mynd/Skjáskot af RÚV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fylgi Miðflokksins hrynur um sjö prósentustig í nýrri könnun MMR á fylgi flokka, fylgið er farið úr 13,1% niður í 5,9%. Á sama tíma bætir Framsóknarflokkurinn við sig fimm prósentustigum frá síðustu mælingu.

Miðflokkurinn mælist þó inni á þingi, ólíkt könnun Zenter frá því í byrjun mánaðarins.

Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 22,1% landsmanna í könnun MMR sem framkvæmd var dagana 5.-11. desember. Fylgi Sjálfstæðisflokksins jókst um eitt prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 21. nóvember. Samfylkingin mældist með 16,9% fylgi, sem er svipað fylgi og flokkurinn mældist með í síðustu könnun. Píratar bættu rúmlega þremur prósentustigum við fylgi sitt frá síðustu könnun og mældust með 14,4% fylgi. Þá bættu Vinstri græn rúmlega tveimur og hálfu prósentustigi við fylgi sitt.

Stuðningur við ríkisstjórnina jókst lítillega en 40,3% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 39,9% í síðustu mælingu.

Fylgi Vinstri grænna mældist nú 12,9% og mældist 10,3% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 12,5% og mældist 7,5% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,5% og mældist 8,6% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokks mældist nú 5,9% og mældist 13,1% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,2% og mældist 7,6% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 2,6% samanlagt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Birgir í klemmu

Orðið á götunni: Birgir í klemmu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“