fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Flokkarnir skammta sér skattfé: „Óskalisti frá framkvæmdastjórum flokkanna um það sem þá vantar til að borga skuldirnar“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 14. desember 2018 14:03

Gunnar Smári.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samþykkt var í dag breytingarfrumvarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra, um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra. Flutningsmenn þess voru fulltrúar allra flokka á þingi, þau Bjarni Benediktsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Logi Einarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Felur frumvarpið meðal annars í sér að þakið á fjárframlögum einstaklinga og lögaðila til stjórnmálaflokka er hækkað, auk þess sem framlag ríkisins til stjórnmálaflokka er hækkað um 20 prósent. Í fyrra hækkaði framlagið í heildina til stjórnmálaflokka úr 286 milljónum í 648 milljónir.

Þá var einnig samþykkt frumvarp um fjölgun aðstoðarmanna þingmanna, sem felur í sér um 150 milljóna kostnað á ári, fyrir 17 aðstoðarmenn til viðbótar við þá sem fyrir eru.

Engin greining, bara skömm

Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokks Íslands, segir skömm Alþingis botnlausa:

„Eitt mál. Þingið var að samþykkja með dynjandi lófataki að fjölga aðstoðarmönnum þingmanna og auka framlag ríkis- og sveitarsjóða til stjórnmálaflokka. Að baki þessu liggur engin þarfagreining, engin rannsókn eða gaumgæfilegt mat; aðeins óskalisti frá framkvæmdastjórum flokkanna um það sem þá vantar til að borga skuldirnar eftir síðustu herferð með formönnunum á öllum strætóskýlum og með ávörp í auglýsingatímum sjónvarpsstöðvanna. Þegar fátækt fólk biður um réttlæti, öryrkjar eða eftirlaunafólk; er það ekki afgreitt svona fljótt. Þá þarf að skipa sautjándu nefndina til að kanna hvort fólk hafi það ekki bara fullgott langt undir fátækramörkum. Skömm Alþingis er botnlaus. Og allra þeirra flokka sem þar sitja, enginn þeirra hafði dug til að segja að það væri margt ofar á forgangsröð stjórnvalda en að auka enn, aftur og nýbúið við fjáraustur flokkanna úr sameiginlegum sjóðum.“

Hækkun á viðmiði

Núgildandi reglur kveða á um að ef einstaklingur gefur 200 þúsund krónur eða meira, verði hann nafngreindur í ársreikningum stjórnmálaflokkanna. Lagt er til í frumvarpinu að nafnleysisþakið sé hækkað í 300 þúsund krónur.

Í fyrra lögðu sex flokkar fram tillögu um að hækka framlög ríkisins til stjórnmálaflokka um 127 prósent og skiptu allir flokkar á þingi milli sín 648 milljónum, í stað 286 milljónum. Píratar og Flokkur fólksins voru ekki með á tillögunni, en nutu samt ágóða hækkunarinnar.

Frumvarpið tiltekur einnig að við endurskoðun á almennu framlagi ríkisins til stjórnmálaflokkanna, verði breytingar á vísitölum verðlags og launa haft til hliðsjónar. Ef miðað er við 2,7 prósenta hækkun líkt og verðbólguspár segja, fá stjórnmálaflokkarnir því 665 milljónir til skiptanna á næsta ári, eða 17,5 milljónum meira en síðast.

Einnig þurfa flokkarnir að skila inn ársreikningi fyrir 1. nóvember í stað 1. Október, og verða ársreikningar birtir í heild sinni, í stað útdráttar líkt og tíðkast hefur hingað til.

Frumvarpið tekur einnig á öðrum málum, eins og nafnlausum kosningaáróðri. Verður stjórnmálaflokkum, kjörnum fulltrúum og frambjóðendum gert óheimilt að „fjármagna, birta eða taka þátt í birtingu efnis eða auglýsinga í tengslum við stjórnmálabaráttu nema fram komi við birtingu að efnið sé birt að tilstuðlan eða með þátttöku þeirra.“ Brot gegn þessu varða sektum.

Á þetta að koma í veg fyrir rætin kosningamyndbönd og annan áróður sem sést hafa í aðdraganda kosninga á undanförnum árum. Frumvarpið nær þó ekki yfir mögulegan þriðja aðila, sem tengdur er stjórnmálaflokkum óbeint, en gengur samt erinda þeirra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega