Félagasamtökin Andstæðingar stóriðju í Helguvík hafa falið Flóka Ásgeirssyni lögmanni hjá Málflutningsstofu Reykjavíkur að óska eftir því við Umhverfisstofnun að stofnunin afturkalli starfsleyfi Stakksbergs ehf., áður United Silicon, sem er dótturfélag Arion banka hf. fyrir rekstri kísilverksmiðju í Helguvík. Samtökin telja annars vegar að ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins sé ógildanleg og hins vegar að alvarleg tilvik og ítrekuð brot gegn lögum, reglum og ákvæðum starfsleyfisins hafi komið upp á gildistíma þess og að úrbótum hafi ekki verið sinnt. Samtökin segja að áður en starfsemin hafi verið stöðvuð hafi Umhverfisstofnun borist á annað þúsund kvartana vegna lyktarmengunar frá verksmiðjunni þar sem lýst var margvíslegum líkamlegum einkennum af hennar völdum.
Þá telja Andstæðingarnir að annað hvort mat á umhverfisáhrifum byggi á röngum forsendum um fyrirhugaða starfsemi eða þá að hönnun og starfsræksla verksmiðjunnar sé ekki í samræmi við þær forsendur sem lagðar voru til grundvallar matinu og þar með útgáfu starfsleyfisins. Hvoru tveggja sé um að ræða verulegan annmarka á málsmeðferð til undirbúning útgáfu starfsleyfisins sem leiðir til þess að ákvörðunin er ógildanleg og þar með afturkallanleg. Samtökin telja ljóst að stöðvun starfseminnar ein og sér sé ekki til þess fallin að ná því markmiði að tryggja nauðsynlegar úrbætur þannig að frávikin endurtaki sig ekki heldur sé nauðsynlegt að starfsleyfisveitingarferlið sé endurtekið á réttum forsendum og afturköllun starfsleyfisins eina úrræðið sem getur náð því markmiði að tryggja til frambúðar að starfsemi verksmiðjunnar verði í samræmi við lög.
Samtökin standa fyrir undirskriftarsöfnun íbúa til að efna til bindandi íbúakosningar vegna starfsemi Stakksbergs og Thorsil í Helguvík. Rafrænn undirskriftarlisti er opinn til miðnættis í kvöld 14. desember.