fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Björn segir Morgunblaðsgrein sendiherrans lygi og hluta af samræmdri aðgerð Rússa til upplýsingafalsana

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 14. desember 2018 16:54

Samsett mynd DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, sakar Anton Vasílev, sendiherra Rússlands á Íslandi, um upplýsingarfalsanir og lygar í grein hans í Morgunblaðinu. Björn er harðorður í pistli sínum svo minnir á gamla takta úr Kalda stríðinu.

Hann segir sendiherrann öðru hverju árétta upplýsingafalsanir stjórnar sinnar í íslenskum fjölmiðlum, nú síðast í gær:

„Þar lætur sendiherrann, Anton Vasílev, eins og það sé alfarið á ábyrgð Bandaríkjastjórnar að INF-samningurinn svonefndi um takmörkun skammdrægra og meðaldrægra flauga sé í hættu. Staðreynd málsins er að 4. desember sl. gaf utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að loknum utanríkisráðherrafundi NATO-ríkjanna, Rússum 60 daga frest til að laga sig að ákvæðum samningsins ella áskildi Bandaríkjastjórn sér rétt til að rifta honum með sex mánaða fyrirvara og jafnframt að hefja þróun, framleiðslu og uppsetningu á eigin flaugum,“

segir Björn sem var dómsmálaráðherra 2003-2009 og er vel að sér í varnarmálum.

Björn segir Rússa hafa brotið gegn INF-samningnum með uppsetningu Iskander flugskeyta. Þeir hafi í fyrstu neitað tilvist þeirra, en síðan þyrlað upp moldviðri með því að ráðast á Bandaríkjastjórn í von um að fela brot sitt.

„Rök sendiherrans gegn ásökunum í garð Rússa vegna brota þeirra gegn INF-samningnum eru þau sömu og jafnan áður: Rússar hafi ekki fengið nein gögn afhent um brot þeirra! Þá upphefur sendiherrann kveinstafi um að Rússar séu sakaðir „um allar dauðasyndir, skipulega og rakalaust“. Lýsir hann síðan sakleysi Rússa vegna innrásar þeirra í Georgíu árið 2008, innlimunar Krímskaga árið 2014, flugskeytaárásarinnar á MH17 farþegavélina árið 2014, íhlutunar í bandarísku forsetakosningarnar árið 2016 og eiturefnaárásarinnar á Skripal-feðginin á Englandi árið 2018.“

Samræmd aðgerð Kremlverja

Björn segir að þetta „syndaregistur“ Rússa sé öllum opið, en þeir láti jafnan eins og ekkert hafi „sannast“ á þá og nefnir flugskeytaárásina á MH17 farþegaflugvélina, sem skotin var niður í austurhluta Úkraínu árið 2014, með rússnesku flugskeyti, að því talið er.

Björn segir grein sendiherrans hluta af samræmdri aðgerð Kremlverja til lyga og upplýsingafalsana:

„Vilji sendiherra Rússlands ögra sannleikanum og heilbrigðri dómgreind blaðalesenda á Íslandi heldur hann áfram að senda blöðunum greinar. Blöðin ættu hins vegar að gera lesendum sínum grein fyrir því að greinar sendiherrans eru liður í samræmdri aðgerð Kremlverja til að nýta sér mál- og prentfrelsi lýðræðisþjóða til að koma ár sinni fyrir borð með lygum og upplýsingafölsunum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn