fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Már staðreynir sáttaleiðina við Samherja eftir minni: „Ég tek ekki upp mín símtöl enda er það ólöglegt“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 13. desember 2018 15:15

Már Guðmundsson og Þorsteinn Már Baldvinsson. Samsett mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann rekur ferli sáttaleiðarinnar svokölluðu, sem hann fullyrðir að Seðlabankinn hafi sannarlega farið, í samskiptum sínum við Samherja í stað þess að kæra málið strax, líkt og að endingu var gert. Hæstiréttur staðfesti síðan dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að fella úr gildi sekt bankans í garð Samherja, vegna meintra brota á gjaldeyrislögum. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, hefur sagst efast um sannleiksgildi fullyrðinga Más um sáttaleiðina.

Már tekur sérstaklega fram að hann styðjist að hluta við eigin minni:

„Í viðtölum við fjölmiðla sunnudaginn 25. nóvember sl. kom fram í máli mínu að ég hefði látið kanna möguleikann á því að fara sáttaleið í svokölluðu Samherjamáli í stað þess að kæra málið til embættis sérstaks saksóknara eins og gert var hinn 10. apríl 2013. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf., lét hafa eftir sér í fjölmiðlum að hann efaðist um að þetta væri satt. Það er það eigi að síður og er það stutt með því sem hér fer á eftir. Þar er að hluta til stuðst við minni, m.a. þar sem ég tek ekki upp mín símtöl enda er það ólöglegt án vitundar gagnaðila, og tíma tók að draga saman og staðreyna upplýsingar.“

Sáttaferli 2012

Már segir að sáttaleiðin hafi fyrst verið reynd sumarið 2012, símleiðis við Þorstein Má:

„Sumarið 2012 átti ég samtöl í síma við Þorstein Má um stöðuna í Samherjamálinu. Þar barst talið að þeim möguleika að málið yrði sett í sáttaferli sem myndi m.a. fela í sér einhverjar þær breytingar á fyrirkomulagi og verklagi hjá Samherja sem sköpuðu traust á því að gjaldeyrisskil fyrirtækisins væru í lagi. Í framhaldinu bað ég framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlitsins að kanna þennan möguleika. Hún aflaði lögfræðiálits frá Gizuri Bergsteinssyni hæstaréttarlögmanni, sem dagsett er 29. ágúst 2012, um lagaheimildir Seðlabankans til þess að ljúka málum er varða brot á lögum um gjaldeyrismál með sátt. Í niðurstöðum álitsins segir: Seðlabanka Íslands er heimilt að ljúka máli með sátt hafi málsaðili gerst brotlegur við ákvæði laga nr. 87/1992 um gjaldeyrismál eða reglur settar á grundvelli þeirra. Þessi heimild er bundin við að ekki sé um að ræða meiri háttar brot, en bankanum ber að vísa málum vegna slíkra brota til lögreglu.“

Ekki heimildir fyrir sáttaferli

Már segir að eftir áramótin 2012 hafi orðið ljóst að Seðlabankinn hefði ekki heimild til að fara sáttaleiðina, þar sem gjaldeyrismálið teldist meiriháttar, í skilningi laga:

„Á þessum tíma var frumrannsókn Seðlabankans á Samherjamálinu ekki lokið. Þegar leið að því um veturinn fór ég aftur að biðja um athugun á því að ljúka máli Samherja með sátt. Það varð til þess að ég átti fund með Gizuri Bergsteinssyni hrl. og framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlitsins til að fara yfir spurninguna á ný með tilliti til þess lögfræðiálits sem lá fyrir frá því í ágúst 2012 og niðurstaðna frumrannsóknarinnar. Sá fundur var haldinn eftir áramótin 2012/13, að því mig minnir í mars eða snemma í apríl. Eftir fundinn var ljóst að Seðlabankinn hafði ekki heimildir til að setja málið í sáttaferli eins og það lá fyrir enda taldist málið þá vera meiriháttar í skilningi laga um gjaldeyrismál. Þvert á móti var það beinlínis embættisskylda mín eins og lögin voru að senda málið áfram til sérstaks saksóknara. Ég tilkynnti Þorsteini Má í símtali þá niðurstöðu en við höfðum verið í símasambandi um stöðu málsins á fyrstu mánuðum ársins 2013.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki