Fanney Birna Jónsdóttir er hætt sem aðstoðarritstjóri Kjarnans. Hún hætti í október eftir 10 mánaða starf. Meðfram því að starfa á Kjarnaum hefur hún stýrt umræðuþættinum Silfrinu aðra hvora helgi á RÚV. Samkvæmt MBL mun hún halda því áfram. Hún á 0,97% hlut í Kjarnanum og mun eiga hann áfram.
„Ég hætti í mikilli sátt og í samráði við eigendur og ritstjóra,“ segir Fanney í samtali við MBL. Álagið hafi einfaldlega verið of mikið að vera bæði hjá Kjarnanum og að stýra Silfrinu aðra hvora helgi á RÚV.
Hún verður því áfram verktaki fyrir RÚV. Hún segir að meðfram því að stýra þjóðmálaþætti hafi hún einnig verið að sinna afleysingarstörfum fyrir RÚV, sem hún mun gera áfram.