Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, lýsti því yfir á dögunum að hún hygðist leggja Maístjörnunni til 100 þúsund krónur á mánuði af launum sínum, en Maístjarnan er nýr styrktarsjóður Sósíalistaflokksins og skráður á sömu kennitölu.
Björgvin Guðmundsson, fyrrum ritstjóri Viðskiptablaðsins og einn eigenda almannatengslafyrirtækisins KOM, bendir á það á Twitter í gær að ef Sanna láti meira en 400 þúsund krónur af hendi á ári, sé hún að brjóta lög um fjármál stjórnmálaflokka.
Hann segir einnig að í skilmálum Maístjörnunnar, fyrir þá sem leggja félaginu til fé, standi að fullum trúnaði sé heitið gagnvart kaupanda og upplýsingar verði ekki afhentar þriðja aðila „undir neinum kringumstæðum.“
Sú fullyrðing gengur einnig gegn lögum um fjármál stjórnmálaflokka, sem segja: „Einnig skal birta nöfn einstaklinga sem veitt hafa framlög sem eru metin á meira en 200.000 kr.“
Björgvin greinir einnig frá því að fullyrðing Sósíalistaflokksins standist ekki varðandi trúnaðinn gagnvart kaupanda, þar sem Ríkisendurskoðun birti öll nöfn lögaðila og einstaklinga sem gefi stjórnmálaflokkum yfir 200 þúsund krónur á ári.
Sanna var til viðtals í Fréttablaðinu í gær varðandi málið. Hún sagðist ekki sjá hvert vandamálið væri, Maístjarnan væri sjálfstætt verkefni, þó það væri á vegum Sósíalistaflokksins:
„Þetta er hugsað til að deila fjármagni til þeirra sem þurfa. Maður hefði hugsað að þessar reglur, eða þessi lög, séu til að halda utan um styrki til flokka en þarna er flokkurinn að deila út fjármagni, þannig þetta er eiginlega akkúrat öfugt.“
Aðspurð hvort Maístjarnan ætlaði að sækja um nýja kennitölu fyrir Maístjörnuna, sagði Sanna:
„Ég á mjög erfitt með að sjá hvað vandamálið er. Þarna er flokkurinn í rauninni að láta frá sér fjármagn, en framlagið sem við fengum fyrir að vera borgarstjórnarflokkur það var 900 þúsund og það fór inn á Maístjörnuna þannig við erum einmitt ekki að fá inn pening inn á borð flokksins, við erum að fá inn á Maístjörnuna.“
Guðrún Jenný Jónsdóttir, sviðsstjóri hjá Ríkisendurskoðun, sagði við Fréttablaðið að lögin væru alveg skýr:
„Ef þetta er ekki aðgreint, þá er þetta hluti af stjórnmálastarfinu og þá gilda sömu reglur. Þá er þetta inni í rekstri samtakanna og þá gilda reglurnar um framlögin.“
Björgvin segir að með ummælum sínum í Fréttablaðinu sé Sanna að opinbera hvernig Sósíalistaflokkurinn ætli að fara framhjá lögunum:
„Hér boðar Sanna aðferð til að fara framhjá lögum um fjármál stjórnmálaflokka. Framkvæmdastjórn @sosialistar „heldur utan um og mótar starfsemi“ maístjörnunnar, sem mun styðja við málflutning flokksins. Þetta er siðbót sósíalista í íslenskri pólitík.“
Sjá meðal annars hér: https://t.co/S5PFe6Jfkk pic.twitter.com/H9FYA2oUdo
— Bjorgvin Gudmundsson (@BjorgvinG) December 12, 2018
Þetta er næstum því vandræðalegt hjá @sosialistar. Þau lofa fullum trúnaði um framlög til Maístjörnunnar. Hins vegar segir í lögum: "Einnig skal birta nöfn einstaklinga sem veitt hafa framlög sem eru metin á meira en 200.000 kr." @Kjarninn pic.twitter.com/0crLnDM4Zh
— Bjorgvin Gudmundsson (@BjorgvinG) December 12, 2018