fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Nærmynd af Bergþóri Ólasyni: Efnilegur kúluvarpari sem gaf bróður sínum nýra

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 9. desember 2018 13:00

Bergþór Ólason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, ákvað í vikunni að taka sér launalaust frí frá Alþingi eftir að Klaustursmálið umdeilda komst í hámæli. Þar sátu sex þingmenn að sumbli og töluðu illa um mann og annan. Á upptökunum heyrist Bergþór fara mikinn, kallaði hann Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, „kuntu“ og Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra „tík“. Bergþór hefur beðið Ingu Sæland afsökunar á orðum sínum og sagt að orðfærið sem hann notaði væri sér framandi. En hver er Bergþór Ólason, hvaðan kemur hann og hver verður framtíð hans? Hér er reynt að varpa ljósi á einn umdeildasta þingmann þjóðarinnar.

Bergþór fæddist á Akranesi árið 1975, hann ólst upp í Borgarnesi. Hann býr nú einn í einbýlishúsi á Akranesi og keyrir á eigin bíl í vinnuna. Bergþór á eitt barn, dóttur fædda árið 2016 en er ekki skráður í sambúð, hann gerir  hjúskaparstöðu sína ekki opinbera á samfélagsmiðlum og því ekki hægt að fullyrða hvort hann sé á lausu. Bergþór er kristinn maður og hann styður samskipti Þjóðkirkjunnar og skóla. Þess má geta að dóttir hans er hugsanlega fyrsta barnið hér á landi sem var skírð í vita, það var í Akranesvita sumarið 2016.

Eitt mesta kastefni sem vitað var um

Bergþór 14 ára gamall frjálsíþróttakappi.

Bergþór er sonur Óla Jóns Gunnarssonar en Óli Jón var bæjarstjóri í Borgarnesi frá 1987 og í Stykkishólmi frá 1999 til 2005, og Óskar Bergþórsdóttur, loftskeytamanns og húsmóður. Bergþór byrjaði snemma í íþróttum og var í fótbolta sem barn. Sagt var frá því í DV þegar hann var 11 ára að hann hafi átt sér einskis ills von í marki Skallagríms í leik á móti Stjörnunni. Bergþór skipti þá um íþrótt og tveimur árum síðar var hann að gera góða hluti í frjálsum íþróttum með UMSB. Þegar hann var 13 ára setti hann Íslandsmet í spjótkasti pilta, kastaði 43,1 metra. Hann setti svo Íslandsmet í kúluvarpi pilta, kastaði 14,26 m, og bætti þar með met frá 1978 um 3 cm. „Síðan hafa margir spreytt sig við að bæta það, en ekki tekist það fyrr en nú. Bergþór er eitt mesta kastefnið sem vitað er um hér á landi,“ segir í umfjöllun Morgunblaðsins í ágúst 1989. Met Bergþórs var ekki slegið fyrr en 1996.

Hann hélt áfram í kúluvarpi og þegar hann var 14 ára varð hann efstur á ungmennamóti í kúluvarpi og  sleggjukasti. Hann var svo valinn í hópinn sem fór á Ólympíuleika 17 ára og yngri árið 1990.

Þurfti að þvo bíl þjálfarans

Mynd DV af Bergþóri árið 1991 þegar hann var Íslandsmeistari í kúluvarpi pilta.

Árið 1991 var Bergþór í viðtali við DV eftir að hafa orðið Íslandsmeistari í kúluvarpi pilta, en var þó mjög óhress með árangur sinn. „Allt gekk vel í upphituninni og henti ég langt yfir 14 metrana, – en svo fór allt í baklás. Ég á reyndar best 15,10 metra. Fyrir þetta mót var ég búinn að ná mjög góðum köstum heima og var því bjartsýnn. En það fór á annan veg. Ég er reyndar nýbúinn að breyta yfir í snúningsstílinn og þarf greinilega lengri tíma til að ná betri tökum á atrennunni. Það er óþarft að hafa áhyggjur af þessu, þetta hlýtur að koma,“ sagði hinn ungi kúluvarpari. Í síðasta kastinu breytti Bergþór yfir í gamla stílinn og mistókst kastið hrapallega. Eftir á kom þjálfari hans, Íris Grönfeldt, askvaðandi til hans og spurði hann hver hefði eiginlega leyft honum að breyta um kaststíl? „Enginn,“ svaraði Bergþór hálf vandræðalega. „Svona ganga hlutirnir ekki upp. Þú verður að taka út refsingu, drengur minn, fyrir svona glappaskot. Þú skalt því þvo bílinn minn í dag. Hann er líka orðinn býsna óhreinn. – Skilið?,“ hafði DV eftir Írisi. Skipti það engu máli þótt hann hefði orðið Íslandsmeistari.

Bergþór lenti í öðru sæti sem Íþróttamaður Borgarfjarðar árið 1989. Langhlaupakonan Margrét Brynjólfsdóttir var í fyrsta sæti með 51 stig, einu stigi meira en Bergþór, hann var þá 14 ára. Bergþór lenti aftur í öðru sæti árið 1992. Hann var svo hættur að birtast á íþróttasíðum dagblaðanna árið 1994. Bergþór var skiptinemi í Bandaríkjunum og gekk í Royal High School í Simi Valley í Kaliforníu. Þess má geta að hann er áhugamaður um amerískan ruðning og má mögulega rekja það til skiptinemaáranna í Bandaríkjunum.

Gaf bróður sínum nýra

Eftir að Bergþór útskrifaðist með stúdentspróf úr Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi fór hann í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Hann starfaði hjá Heklu hf. samhliða námi og síðar sem ráðgjafi hjá Lýsingu hf. Hann var einnig lögreglumaður í sumarafleysingum.

Um aldamótin gaf Bergþór bróður sínum, Rúnari, annað nýra sitt. Aðgerðin gekk blessunarlega vel og báðum hefur heilsast vel síðan. Þessi göfuga gjöf Bergþórs hefur ekki farið hátt en þó vita vinir hans og samstarfsmenn af þessari staðreynd. Á Klaustursupptökunum má heyra Gunnar Braga Sveinsson, þingmann Miðflokksins, öskra: „Hann er bara með eitt nýra. En það er ofvirkt nýra.“

Kynntist Sigmundi Davíð á háskólaárunum

Bergþór árið 1999.

Bergþór varð snemma virkur í Sjálfstæðisflokknum og var formaður Egils, félags ungra sjálfstæðismanna í Borgarnesi, 1997-1999. Hann sat svo í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) frá 1999 til 2005. Bergþór var stjórnarmaður í Mágusi, félagi viðskiptafræðinema við Háskóla Íslands, þar lét hann meðal annars Röskvuliða heyra það oftar en einu sinni. Hann var einnig formaður Íslandsdeildar NESU, Samtök norrænna viðskipta- og hagfræðinema um aldamótin. Í viðskiptafræðinni og gegnum starf NESU kynntist Bergþór Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og myndaðist með þeim náinn vinskapur. Þeir voru ekki samstíga í pólitík þá en síðar áttu þeir eftir að verða samherjar í Miðflokknum eins og frægt er orðið.  Menntun Bergþórs er ekkert slor, hann stundaði framhaldsnám í Alliance Manchester Business School sem er einn besti skóli á sínu sviði í Evrópu. Þaðan útskrifaðist hann með MBA gráðu.

Vildi verða bæjarstjóri 27 ára

Bergþór árið 2009.

Bergþór var stórhuga eftir að hann útskrifaðist. Hann sótti um stöðu bæjarstjóra Ölfuss árið 2002, þá aðeins 27 ára gamall. Hann var ekki ráðinn. Starf hans innan flokksins borgaði sig því ári síðar var hann orðinn aðstoðarmaður Sturlu Böðvarssonar, þáverandi samgönguráðherra. „Ráðherrann hafði samband við mig og það var ekki hægt að segja nei við jafn spennandi starfi og þessu,“ sagði Bergþór við Fréttablaðið um ráðninguna. Hann hætti árið 2006 og ári síðar hóf hann störf hjá Kaupþingi. Árið 2007 gagnrýndi hann Andra Snæ Magnason og fjölmiðla harðlega fyrir ummæli um að Rio Tinto væri „versta fyrirtæki í heimi“. Í grein sem Bergþór skrifaði í Morgunblaðinu titlaði hann sig sem „áhugamann um vandaðan fréttaflutning“ og vandaði hann Íslandi í dag ekki kveðjurnar fyrir að hafa ekki stundað rannsóknarvinnu í tengslum við ummæli Andra Snæs.

Bergþór sóttist eftir sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningarnar 2007 og hafnaði í 8. sæti, einu sæti ofar en Þórdís K.R. Gylfadóttir núverandi ráðherra. Árið 2009 bauð hann sig fram í 2. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi og hafnaði í 5. sæti. Nokkrar óánægju gætti meðal Sjálfstæðismanna í kjördæminu vegna prófkjörsins, en Bergþór var rólegur með það allt saman þegar DV ræddi við hann um málið árið 2009.

Eftir hrun varð Bergþór fjármálastjóri Loftorku í Borgarnesi, hann varð svo framkvæmdastjóri Loftorku, nú LOB ehf. árið 2016. Hann var einnig framkvæmdastjóri Byggingalausna ehf. Hann sat í ýmsum stjórnum félaga og fyrirtækja og var einn þeirra sem Gunnar Bragi Sveinsson skipaði í stjórn Matís nokkrum dögum áður en Gunnar Bragi lét af embætti.

Þann 5. október 2017 var svo tilkynnt að hann myndi leiða lista Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi. „Bergþór mun m.a. leggja áherslu á byggingu nýs Landspítala á nýjum stað og skynsamlega lækkun tryggingagjalds til að bæta starfsumhverfi fyrirtækja,“ sagði í tilkynningunni. Tveimur mánuðum síðar var hann orðinn formaður umhverfis- og samgöngunefndar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki