fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

Róbert segir Kastljósviðtal Lilju „æft“ og „sviðssett“: „Skaut yfir markið með ofbeldistali sínu“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 7. desember 2018 10:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Róbert Trausti Árnason, pistalhöfundur Hringbrautar, tekur annan pól í hæðina en margir varðandi Kastljósviðtal Lilju Alfreðsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, vegna ummæla sexmenninganna á Klaustur bar um sig í leyniupptökunum.

Lilja talaði um sexmenningana sem ofbeldismenn sem ættu ekki að hafa dagskrárvaldið og þótti henni almennt takast vel upp, var henni hampað og hrósað á samfélagsmiðlum og sögð hafa veitt Miðflokknum rothögg með frammistöðu sinni.

Róbert Trausti er ekki á sama máli og segir frammistöðu Lilju „æfða“ og „sviðsetta“ af fagmönnum. Þá gagnrýnir hann orðanotkun Lilju einnig:

„Einhverjir almannatenglar hafa reynt að halda því fram í dag að Lilja Alfreðsdóttir hafi náð að „slá Miðflokkinn niður“ í sjónvarpsviðtali sem RÚV flutti í gær. Þetta er mikill misskilningur. Annað hvort eru þeir sem álykta með þessum hætti ekki nægilega vel að sér eða þá eru þeir að reyna að koma inn tilteknum viðhorfum hjá fólki. Lilja kom vel fyrir í sjónvarpsviðtalinu enda virtist sýningin hafa verið æfð og sviðsett af mikilli kostgæfni undir stjórn fagmanna. Um það er allt gott að segja. Stjórnmálamenn eiga að nýta sér ráðgjafa og mikilvægt er að velja sér rétta PR-fólkið til verka. Sigmundur Davíð og félagar á Klaustur-barnum voru kallaðir „ofbeldismenn“ í þessu viðtali. Lilja sakaði þá um ofbeldi vegna þeirra dónalegu orða sem þeir létu falla. Varla er deilt um það að félagarnir á barnum sýndu dómgreindarleysi. Á þeim var sorakjaftur og ætla má að eitthvað hafi farið úrskeiðis í uppeldi þeirra frá öndverðu. En beittu þeir ofbeldi? Samkvæmt almennum íslenskum málskilningi er ofbeldi annað og miklu meira en dónalegt orðbragð og fylliríisröfl miðaldra fólks.“

Skot yfir markið

„Lilja Alfreðsdóttir skaut yfir markið með ofbeldistali sínu og yfirlýsingu um að hún gæti aldrei fyrirgefið það sem sagt var.Aldrei að segja aldrei er stundum bent á. Ef Lilja ætlar að vera áfram í pólitík þá er betra að gefa ekki svona afgerandi yfirlýsingar. Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði til dæmis aldrei að vinna í ríkisstjórn undir forystu sósíalista. En gerir það samt og þurfti að éta stórt ofan í sig. Lilja hefur ótakmarkaðan metnað og hún mun gera hvað sem er til að ná lengra á sviði stjórnmálanna. Þennan metnað hefur hún frá föður sínum, Alfreð Þorsteinssyni fyrrum borgarfulltrúa Framsóknar, manninum sem ber höfuðábyrgð á fjárfestingarhneykslinu sem hús Orkuveitu Reykjavíkur er og kostar borgarbúa marga milljarða. Alfreð var alltaf til í að semja um allt fyrir völd. Lilja hefur verið talin geta orðið sáttasemjari milli Framsóknar og Miðflokks en gamla framsóknarmenn dreymir um að sameina þessa systurflokka. En í gær slökkti hún á þeirri von. Það getur ekki orðið sátt um Lilju eftir að hún kallaði forystu Miðflokksins „ofbeldismenn“. Þar með fór sú von.“

Róbert segir að Lilja hefði átt að sýna önnur viðbrögð en hún gerði. Hún hefði átt að sýna stórmennsku:

„Hefði Lilja viljað verða stór og sýna að hún væri stærri en  bardónarnir, þá hefði hún átt að vorkenna þeim, aumkuna sig yfir þá og bjóða sættir. Þá hefði hún sýnt stórmennsku. En það gerði hún ekki. Það hefur enginn aðili þessa máls sýnt stórmennsku. Það vantar alveg. Ógæfufólkið á barnum situr fast í drullupolli og aðrir hafa valið að henda sér ofan í pyttinn til þeirra. Nú síðast Lilja Alfreðsdóttir.“

Vælukeppni

Róbert Trausti segir þingmenn keppast við að grenja út af málinu og spyr hver það verði sem grenji í dag:

„Í dag hefur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson lýst því yfir hve mjög honum sárni að vera kallaður ofbeldismaður. Hann hefur grenjað við öxlina á þjóðinni út af því. Nú keppist þetta fólk allt saman við að reyna að láta kjósendur vorkenna sér. Í gær var það Lilja og Sigmundur í dag. Hver mun grenja fyrir okkur á morgun?“

„Í ljósi þess að hafa lifað Panamadæmið af, þá mun Sigmundur Davíð hrista Klausturmálið af sér. Hann mun vinna þessa mælsku-og grátkeppni við Lilju og aðra. Sigmundur mun segja eins og Marteinn Mosdal: „Ég kem alltaf aftur ……..“

Grunn spor Lilju

Róbert spyr hvort Framsóknarflokkurinn sé einnig rúinn trausti, þrátt fyrir að Lilja hafi þakkað víðtækan stuðning í viðtalinu. Nefnir hann að Framsókn fái aðeins 8,8 prósenta stuðning í könnunum. Þá segir hann að ekkert fararsnið sé á Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hann reki flokkinn líkt og trúarleiðtogi reki söfnuð sinn.

Hann gefur hinsvvegar lítið fyrir pólitíska framtíð Lilju Alfreðsdóttur:

 „Lilja Alfreðsdóttir líkist meira meginþorra þingmanna sem koma og fara án þess að skilja eftir sig djúp spor. Hún hefur nú gegnt stöðu menntamálaráðherra í heilt ár án þess að hafa komið miklu til leiðar. Minnið gæti verið að svíkja mig. En ég man ekki eftir neinum afrekum. Man einhver eftir einhverju markverðu sem Lilja Alfreðsdóttir hefur komið í verk á þessu ári í menntamálaráðuneytinu? Er ekki ennþá virðisaukaskattur á bókum sem hún lofaði að afnema STRAX? Er ekki „hola íslenskra fræða“ enn á sama stað full af illgresi og vatni? Hver eru annars afrekin? Sigmundur Davíð mun halda utan um ofsatrúarhóp sinn og mæta vígreifur til næstu kosninga – „ég kem alltaf aftur ……“ – en erfiðara er að spá um afdrif Lilju Alfreðsdóttur og Framsóknarflokksins.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega