fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Jónas stígur til hliðar: „Áhlaupi sem ætlað var að yfirtaka Sjómannafélag Íslands hefur verið hrundið“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 7. desember 2018 14:36

Heiðveig María Einarsdóttir og Jónas Garðarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Íslands, sendi frá sér yfirlýsingu í dag, þar sem hann segir að áhlaupi á félagið hafi verið hrundið, en Heiðveig María Einarsdóttir, sem ætlaði að bjóða sig fram til formanns félagsins, var rekin úr félaginu, líkt og fjallað hefur verið um.

Jónas segist ætla að stíga til hliðar sem formaður til að flýta sameiningarferli sjómannafélaganna, en býður þó fram krafta sína ef þess sé leitað.

Hann segir að í atlögunni sem gerð var að félaginu hafi falist rangar ásakanir og þeim „slegið upp“ í fjölmiðlum, en lítill áhugi hafi verið að leiðrétta þær rangfærslur jafnóðum:

„Áhlaupi sem ætlað var að yfirtaka Sjómannafélag Íslands hefur verið hrundið. Í þeirri varnarbaráttu var í einu og öllu farið að lögum félagsins. Eflaust eru skiptar skoðanir um einhver ákvæði í lögunum. Til stendur að skipa sérstaka nefnd til þess að endurskoða lögin með heildstæðum hætti og leggja tillögur sínar fyrir aðalfund árið 2019. Í atlögunni sem gerð var að félaginu var það borið þungum sökum um vinnubrögð. Flestar þeirra ásakana voru beinlínis rangar. Þeim var slegið hverri á fætur annarri upp í þeim fjölmiðlum sem mest lögðu sig fram í umfjöllun um deilur innan félagsins. Minni áhugi hefur verið á að leiðrétta þær rangfærslur jafnóðum og sýnt var fram á upplognar sakir. Þannig hefur áhlaupsliðinu tekist að sá frækornum efasemda um heiðarleika og heilbrigði í rekstri Sjómannafélags Íslands.“

Jónas segir að fréttaflutningur af launum hans hafi verið ýktur og að hans persóna hafi verið dregin í sviðsljósið. Segir hann að eiginkonu sinni og börnum hafi verið fléttað inn í málið með grímulausum hætti:

„Í þeim efnum hefur mín persóna verið sett sérstaklega í sviðsljósið. Minnst af þeirri umfjöllun hefur snúist um gagnrýni á störf mín fyrir félagið heldur annars vegar um launakostnað félagsins vegna mín, sem sagður var um þrefalt hærri en raun er á, og hins vegar upprifjun á sorglegum atburðum í einkalífi mínu. Svo langt hefur verið gengið að flétta með grímulausum hætti eiginkonu minni og jafnvel börnum inn í þessa upprifjun fjölmiðlanna. Frammistaða uppkominna barna minna í atvinnulífinu hefur jafnvel verið gerð tortryggileg. Áhlaupshópurinn fann í mér snöggan blett á félaginu og nýtti sér hann út í ystu æsar. Það gerði hann þrátt fyrir að ég hafi strax síðastliðið sumar gefið út yfirlýsingu um að ég myndi ekki bjóða mig fram til áframhaldandi formennsku í félaginu.“

Þá segir Jónas að hann ætli að stíga til hliðar og ný forysta fái það hlutverk að sameina sjómannafélögin. Segist hann „að sjálfsögðu“ ætla að leggja hönd á plóginn sé þess óskað:

„Það verður verkefni nýrrar forystu að sameina á nýjan leik þann styrk sem felst í víðtækri samstöðu innan Sjómannafélags Íslands og lagt hefur grunn að þeim mikla árangri sem náðst hefur á undanförnum árum. Sú vinna þolir enga bið. Til þess að flýta fyrir því ferli hef ég ákveðið að stíga til hliðar sem formaður félagsins. Ég óska þeim sem við keflinu taka farsældar í gríðarlega mikilvægum störfum sínum á næstu mánuðum. Ég mun að sjálfsögðu eins og svo fjölmargir aðrir félagsmenn leggja þar hönd á plóg verði eftir því óskað. Ég tek þessa ákvörðun með eigin hag, fjölskyldu minnar og félagsins að leiðarljósi og vona að hún muni gera sáttaferlið innan Sjómannafélags Íslands auðveldara en ella.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt