fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Ísland kosið til varaformennsku í mannréttindaráðinu

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 4. desember 2018 21:30

Harald Aspelund, fastafulltrúi Íslands, gegnir embætti varaforseta mannréttindaráðs S.þ. á næsta ári. Mynd/Utanríkisráðuneytið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna hefur kosið Ísland til að fara með embætti varaforseta ráðsins. Fastafulltrúi Íslands, stýrir því starfi mannréttindaráðsins á næsta ári með forseta þess. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Kosningin fór fram á fundi ráðsins í Genf í gær. Harald Aspelund, fastafulltrúi Íslands, tekur við embætti varaforseta 1. janúar næstkomandi sem fulltrúi Vestur-Evrópu og annarra ríkja (WEOG-hópsins). Auk Haralds verða fastafulltrúi Króatíu ásamt fulltrúum frá Asíu og Suður-Ameríku varaforsetar ráðsins að þessu sinni. Forseti mannréttindaráðsins, Coly Seck, kemur frá Senegal.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir Íslandi vera sýnt mikið traust með því að vera falið þetta ábyrgðarstarf fyrir hönd Vesturlanda. „Frá því að ég sótti fund mannréttindaráðsins vorið 2016, fyrstur íslenskra ráðherra, höfum við lagt áherslu á að taka virkari þátt í starfi þess á ábyrgan og markvissan hátt. Kjör okkar í ráðið fyrr á árinu felur í sér ákveðna viðurkenningu á því starfi. Sú staðreynd að við njótum stuðnings til að stýra ráðinu er enn frekari viðurkenning á framlagi Íslands“, segir Guðlaugur Þór.

Hlutverk varaforseta ráðsins er að stýra fundum þess og öðrum verkefnum, líkt og jafningarýninni svokölluðu (Universal Period Review), í samstarfi við forseta ráðsins hverju sinni. Fastafulltrúi Íslands býst við að þetta hlutverk verði enn mikilvægara á næsta ári vegna yfirstandandi umræðu um endurbætur á ráðinu. „Við höfum lagt áherslu á bætta starfshætti ráðsins með það að markmiði að styrkja starfið í þágu mannréttinda í heiminum. Þessi umræða mun halda áfram undir stjórn nýs forseta ráðsins,“ segir Harald Aspelund, fastafulltrúi Íslands.

Ísland var kosið í mannréttindaráðið í sérstökum aukakosningum á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna síðastliðið sumar þegar sæti losnaði við úrsögn Bandaríkjanna úr ráðinu. Ísland tók þátt sem fullgilt aðildarríki í 39. fundarlotu ráðsins í haust þar sem íslensku fulltrúarnir fluttu alls fjórtán ávörp og áttu auk þess aðild að tíu ræðum til viðbótar.

Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna var sett á fót árið 2006 og byggir á grunni mannréttindanefndar SÞ sem starfaði frá 1946. Hlutverk þess er að efla og vernda mannréttindi í aðildarríkjum SÞ, fjalla um mannréttindabrot og beinir ráðið með ályktunum sínum tilmælum til einstakra ríkja um úrbætur í mannréttindamálum.

Mannréttindaráðið fundar þrisvar á ári í föstum fundarlotum 3-4 vikur í senn. Þess utan kemur það saman til að ræða einstök brýn mannréttindamál. Þá fjallar ráðið um ástand mannréttinda í einstökum aðildarríkjum SÞ með svokallaðri allsherjarúttekt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn