Fréttamiðlarnir DV/Eyjan og Stundin hafa birt þó nokkrar fréttir upp úr leyniupptökum sem náðist af sex þingmönnum Miðflokksins og Flokki fólksins, er þeir sátu að sumbli á Klaustur bar í miðbænum. Staðahaldarar árétta í tilkynningu að aðkoma staðarins að málinu var engin:
„Vegna fréttaflutnings af leyniupptökum sem áttu sér stað á Kvosinni af nokkrum gestum staðarins, skal tekið skýrt fram að starfsmenn á Kvosin Hotel og Klaustur bar áttu þar hvergi hlut að máli. Þar að auki er enginn hljóðupptökubúnaður á staðnum líkt og ýjað hefur verið að. Kvosin harmar að nafn staðarins hafi dregist inn í fréttaflutning af málinu.
Íris Dögg Ómarsdóttir, framkvæmdastjóri.“
Íris sagði í samtali við Eyjuna að margir hefðu komið að máli við sig og starfsfólkið eftir að fréttir um málið birtust, til að láta vita að slíkar upptökur væru brot á friðhelgi fólks og hafi margir haldið að staðurinn sjálfur, eða starfsmenn hans, hefðu staðið að hleruninni.
DV/Eyjan harmar að fólk hafi misskilið fréttaflutninginn á þessa leið og áréttar nú sem áður, að upptökurnar bárust miðlunum nafnlaust.