fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Þorsteinn Már mætir upp í Seðlabanka í dag

Ari Brynjólfsson
Þriðjudaginn 27. nóvember 2018 11:38

Már Guðmundsson og Þorsteinn Már Baldvinsson. Samsett mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og aðrir fulltrúar Samherja mæta á fund bankaráðs Seðlabanka Íslands í dag. Þetta hefur Eyjan eftir staðfestum heimildum.

Ekki er vitað hvað verður rætt um á fundinum, dagskrá fundarins liggur ekki fyrir og fundargerðir bankaráðs Seðlabankans eru ekki gerðar opinberar. Heimildir Eyjunnar benda þó til að umræðuefnið verði  ógilding Hæstiréttar á stjórnvaldssekt bankans í garð Samherja, fyrir meint brot á gjaldeyrislögum.

Málið fór af stað vorið 2012 með húsleitum Sérstaks saksóknara og gjaldeyriseftirliti Seðlabankans á skrifstofum Samherja. Í kjölfarið kærði Seðlabankinn Samherja. Ári síðar kærði Seðlabankinn Þorstein Má og þrjá aðra stjórnendur Samherja persónulega til sérstaks saksóknara vegna sömu ætluðu brota. Bankinn sektaði Samherja árið 2016 og þann 8. nóvember síðastliðinn staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðsdóms um að bankanum hafi verið óheimilt að sekta Samherja.

Þorsteinn Már hefur sagt að það verði ekki komist hjá því að kæra Má Guðmundsson Seðlabankastjóra til lögreglu og að Már og Sigríður Logadóttir, yfirlögfræðingur bankans, verði leyst frá störfum vegna rangra sakargifta í garð Samherja. „Það verður ekki hjá því komist að kæra Má Guðmundsson til lögreglu vegna rangra sakargifta,“ sagði Þorsteinn Már í viðtali við Viðskiptablaðið fyrr í þessum mánuði. „Hvað við kærum marga fer að sjálfsögðu eftir því hvernig þeir sem bera ábyrgð á bankanum ætla að haga sér.“ Þorsteinn hefur einnig kallað eftir gögnum Seðlabankans um málið, sagði hann í viðtali við fyrr í mánuðinum að bankinn hafi gert mistök við einfalda meðaltalsútreikninga. Orðstír Samherja hafi beðið hnekki vegna málsins og hafi misst af viðskiptatækifærum vegna þess.

Sjá einnig: Þorsteinn Már:„Ekki hjá því komist að kæra Má Guðmundsson til lögreglu“

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var gagnrýnd vegna aðkomu sinnar að málinu strax eftir dóm Hæstaréttar, fyrir að taka með silkihönskum á Má Guðmundssyni Seðlabankastjóra. Hún sagði að dómurinn hefði ekki áhrif á stöðu Más, málið væri ekki þannig vaxið. 12. nóvember sendi Katrín bréf til formanns bankaráðs Seðlabankans, þess efnis að bankinn hefði fram til 7. desember til að gera grein fyrir Samherjamálinu og með hvaða hætti bankinn hygðist bregðast við dómi Hæstaréttar. Í bréfinu minnti hún  Seðlabankann á að lög um bankann væru til heildarendurskoðunar í ráðuneytinu.

Gylfi Magnússon, dósent í viðskiptafræði og fyrrverandi ráðherra, er formaður bankaráðsins. Þórunn Guðmundsdóttir er varaformaður. Aðrir sem sæti eiga í ráðinu eru þau Sigurður Kári Kristjánsson, Frosti Sigurjónsson, Bolli Héðinsson, Una Marín Óskarsdóttir og Jacqueline Clare Mallet.

Már Guðmundsson Seðlabankastjóri er iðulega á fundum bankaráðs en hann verður ekki á fundinum í dag, samkvæmt heimildum Eyjunnar er hann að sinna öðrum verkefnum og mun vera á leið til útlanda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus