fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

Um 10 milljónir farþega fóru um Keflavíkurflugvöll

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 26. nóvember 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll hefur verið afar hröð á síðustu árum. Samkvæmt uppfærðri farþegaspá fyrir árið 2018 er útlit fyrir að niðurstaðan í nóvember og desember þýði að farþegar sem fara um flugvöllinn í ár verði 9,8 milljónir sem er ögn minni aukning en í þeirri spá sem kynnt var í nóvember 2017 og í uppfærðri spá frá því í vor. Aukningin verður samkvæmt þessu 5,4% í nóvember og 3% í desember frá fyrra ári. Fyrir árið í heild er aukningin 12,2% og byggist sú spá meðal annars á ákveðinni sætanýtingu og verða þær tölur staðfestar í lok árs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ISAVIA.

„Farþegaspá Isavia fyrir árið 2019, sem að öllu jöfnu er kynnt í byrjun desember ár hvert, liggur ekki fyrir í dag og skýrist það meðal annars af breytingum á markaði, meðal annars vegna kaupa Icelandair á Wow Air. Samruninn seinkar því hvenær áreiðanleg gögn fást frá flugfélögunum og teljum við að spá fyrir 2019 verði tilbúin í byrjun næsta árs. Það sem einna helst skýrir minni aukningu í ár, miðað við fyrri spá, er að þegar spáin er unnin að hausti þá er alltaf minna vitað um hvernig síðasti ársfjórðungur muni þróast. Þá má gera ráð fyrir að gengi krónunnar hafi einhver áhrif en dýrara var að ferðast til Íslands í sumar en árin á undan.“

segir Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Keflavíkurflugvallar.

Fyrir stuttu var tilkynnt um níu milljónasta farþegann sem fór um Keflavíkurflugvöll á árinu. Sú tala tekur til komu-, brottfarar- og skiptifarþega og var í fyrsta sinn sem því takmarki hefur verið náð á Keflavíkurflugvelli.

  • Uppfærðar tölur um farþegafjölda í nóvember og desember benda til að heildarfjöldinn um Keflavíkurflugvöll árið 2018 verði 9,8 milljónir farþega.
  • Farþegaspá fyrir 2019 tilbúin þegar gögn berast um áform Icelandair og Wow Air.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega