fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Jón Baldvin skammaður af fyrrverandi sendiherra: „Fyrrum utanríkisráðherra er farið að förlast“ – „Fer kolrangt með staðreyndir“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 26. nóvember 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Róbert Trausti Árnason, fréttastjóri Hringbrautar og fyrrum sendiherra, segir í pistli sínum að Jón Baldvin Hannibalsson hafi farið með fleipur í Silfrinu á sunnudaginn, í umfjöllun sinni um þriðja orkupakkann. Jón Baldvin var utanríkisráðherra þegar EES samningurinn var innleiddur fyrir 25 árum, en Róbert Trausti segir að Jón Baldvin taki undir „þvæluna“ sem komi frá Hádegismóum:

„Jón Baldvin Hannibalsson fór kolrangt með staðreyndir í viðtali í sjónvarpsþættinum Silfrið 25. nóvember 2018. Hann tekur undir þvæluna sem kemur úr Hádegismóum um „þriðja orkupakkann“ og styður þannig baráttuna gegn samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Ljóst er að fyrrum utanríkisráðherra er farið að förlast þegar kemur að ýmsum staðreyndum um EES.“

Jón sagði að Íslendingar gætu vel hafnað þriðja orkupakkanum og verið áfram í EES, fordæmi væru fyrir því. Þá taldi Jón Baldvin upp hinar og þessa löggjöfina, sem  Róbert Trausti segir kolrangt:

„Það er alveg á hreinu að við getum hafnað löggjöf sem að samrýmist ekki okkar þjóðarhagsmunum, án þess að það hafi einhverjar skelfilegar afleiðingar, við getum það,“ segir Jón Baldvin. Og hann spyr: „Hefur Evrópusambandið reynt að troða upp á okkur járnbrautarlöggjöfinni? Nei. Hefur Evrópusambandið, það er gríðarlega mikið af reglum um skipaskurðarsamgöngur í Evrópu, nei. Hvað með olíu og gas? Nei, ekki heldur. Við höfum varanlega… það dettur engum í huga að við eigum að yfirtaka þetta.“Þetta er auðvitað kolrangt hjá Jóni Baldvin. Hann veit að hann er ekki að segja satt enda var hann utanríkisráðherra og alþingismaður þegar EES samningurinn var samþykktur á Alþingi. Hið rétta er að þeir EES bræður Jón Baldvin og Davíð Oddsson keyrðu í gegn ýmis lagaákvæði er lúta að járnbrautarlöggjöf á Íslandi. Dæmin þar eru ýmis. Ákvæði 48.–52. gr. laga um EES nr. 2/ 1993 fjalla um flutninga á járnbrautum, vegum og skipgengum vatnaleiðum.“

Róbert nefnir líka annað dæmi um nýleg lög um farþega- og farmflutninga á landi:

„Þau voru samin af skoðanabróður þeirra, og baráttumanni gegn samvinnu Evrópuríkja, Jóni Gunnarssyni þá samgönguráðherra. Í frumvarpi Jóns segir segir beinlínis að efnið þeirra leiði af skuldbindingum íslenska ríkisins samkvæmt EES-samningnum:  „Frumvarp þetta er samið í innanríkisráðuneytinu og er því ætlað að tryggja eða styrkja lagastoð fyrir innleiðingu fimm EES-gerða er snúa að landflutningum.“  M.a. er vísað í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1370/2007 um almenna farþegaflutninga á járnbrautum og á vegum.“

Fer kolrangt með staðreyndir

Róbert segir að Jón Baldvin þurfi að kannast við þau lög sem hann sjálfur samþykkti á sínum tíma, ellegar flokkist hann undir popúlista, haldi hann öðru fram:

„Í öðru lagi er líka rangt hjá Jóni Baldvin að það sé ekki til nein löggjöf í gildi á Íslandi vegna samganga um skipaskurði. Hann gleymir því að hann var utanríkisráðherra þegar grunnur var lagður að íslenskum lögum og reglum um skipgengar vatnaleiðir.  Menn ættu að geta flett upp á „lögum um flutninga á skipgengum vatnaleiðum vegna aðildar Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu nr. 14/ 1996“.  Að auki eru ýmis ákvæði um þetta efni í lögunum um EES nr. 2/1993.

Í þriðja lagi er það rangt hjá Jóni Baldvin, fyrrum utanríkisráðherra, að það sé ekki nein EES löggjöf um olíu og gas í gildi á Íslandi. Fjölmargar reglugerðir sem m.a. fjalla um um olíu og gas eiga rætur sínar í EES. Dæmi um þetta er reglugerðir sem byggja á EES um brennisteinsinnihald í tilteknu fljótandi eldsneyti nr. 124/2015; um gæði eldsneytis nr. 960/2016; og reglugerð um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit nr. 550/2018. Þá eru fjölmargar reglur um raforku, orkuframleiðslu og olíuvinnslu byggja fölmargar á EES, s.s. lög um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/ 2000. Svo má lengi telja. Það vita allir þeir sem um þessi mál fjalla.

Jón Baldvin fer kolrangt með staðreyndir. Hann þarf að kannast við þau lög sem hann samþykkti sjálfur á sínum tíma. Ekki halda einhverju allt öðru fram, líkt og tíðkast hjá popúlistum samtímans.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Birgir í klemmu

Orðið á götunni: Birgir í klemmu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“