fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Gylfi stígur til hliðar um áramótin. „Nú siglir félagið inn í bjarta og spennandi tíma“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 19. nóvember 2018 10:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. og forstjóri félagsins Gylfi Sigfússon hafa komist að samkomulagi um að Gylfi láti af störfum sem forstjóri um næstu áramót. Frá 1. janúar 2019 mun hann stýra daglegum rekstri Eimskips í Bandaríkjunum og Kanada, ásamt  flutningsmiðlunarfyrirtækinu Eimskip Logistics. Stjórn félagsins mun setja af stað ráðningarferli til að ráða nýjan forstjóra. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Eimskipafélagið sendi á Kauphöll Íslands í gærkvöldi.

 Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskipafélags Íslands

„Mér er efst í huga þakklæti til þeirra fjölmörgu stjórnarmanna, stjórnenda og starfsmanna sem og viðskiptavina félagsins sem mér auðnaðist að vinna með á þessum tíma. Þessir aðilar settu allt sitt á vogarskálarnar til að koma Eimskip aftur á skrið. Rekstrar- og fjárhagsleg endurskipulagning félagsins reyndi mikið á starfsfólk en uppskeran var góð og nú siglir félagið inn í bjarta og spennandi tíma. Ég mun stýra frekari uppbyggingu félagsins í Norður-Ameríku, en vikuleg siglingaáætlun til og frá Norður-Ameríku sem kynnt var á síðasta ári er hornsteinn þjónustunnar. Ég óska félaginu, stjórn, starfsmönnum og viðskiptavinum alls hins besta á komandi árum.“

 

Baldvin Þorsteinsson, stjórnarformaður Eimskipafélags Íslands

„Gylfi Sigfússon á að baki farsælan starfsferil hjá Eimskipafélagi Íslands sem spannar um 28 ár en hann tók við stöðu forstjóra í maí< 2008 er hann var beðinn um að leiða fyrirtækið í gegnum krefjandi endurskipulagningu. Áður en Gylfi tók við sem forstjóri félagsins var hann framkvæmdastjóri Eimskips í Bandaríkjunum, Kanada og Eimskip Logistics, en hann mun frá og með 1. janúar 2019 taka aftur við daglegum rekstri og flytjast til Bandaríkjanna. Gylfi tók við starfi forstjóra fyrir tíu árum og leiddi Eimskip í gegnum miklar áskoranir í efnahagslífinu og í gegnum fjárhags- og rekstarlega endurskipulagningu. Verkefnið var ekki aðeins mikilvægt fyrir Eimskip heldur einnig fyrir hagsmuni Íslands; að tryggja óhefta flutninga til og frá landinu á erfiðum tímum, treysta rekstrargrundvöll heima og erlendis, auk þess sem hann stýrði félaginu til nýrrar framtíðar með dugmiklu og samstilltu starfsfólki. Vinnan við endurskipulagninguna tókst vel og félagið stendur sterkt eftir. Markmiðið er að byggja reksturinn áfram á þeim grunni sem lagður var undir stjórn Gylfa. Fyrir hönd stjórnar félagsins færi ég honum þakkir fyrir hans góða starf og óska honum velfarnaðar vestanhafs þar sem hann mun leiða uppbyggingarstarf félagsins í Norður-Ameríku.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus