fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Wilhelm: „Skilnaður er því eina leiðin til að hækka launin um 60 þúsund á mánuði“

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 18. nóvember 2018 16:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þurfum við að skilja eftir 50 ár hjónaband til þess að komast fjárhagslega af?“

Að þessu spyr Wilhelm Wessman sem starfað hefur sem hótelstjóri víða um heim og á Íslandi. Á löngum starfsferli hefur Wilhelm verið almennur launamaður, yfirmaður og atvinnurekandi. Hann tók þátt í að koma lífeyrissjóðakerfinu á þegar það var stofnað og borgaði í lífeyrissjóði í rúmlega 40 ár. Wilhelm telur gróflega brotið á eftirlaunaþegum í dag. Wilhelm skrifar pistil á Facebook sem hefur vakið gríðarlega athygli. Þar segir Wilhelm:

„Þegar við Ólöf giftum okkur og eignuðumst þrjú börn voru engar barnabætur. Á þeim tíma þótti það nánast brottrekstrarsök að ég tók mér frí daginn sem hún kom heim af fæðingardeildinni af því að það var laugardagur, annasamasti dagur vikunnar í hótel og veitingageiranum,“ segir Wilhelm og bætir við:

„Ég byrjaði að greiða í lífeyrissjóð 1968 til að geta tryggt okkur fjárhagslegt öryggi á efri árum og borgaði skatt af þeim hluta sem ég greiddi í 20 ár, eða þar til staðgreiðslan kom 1988.Ég greiði skatt í dag af þessum sömu peningum. Heitir þetta ekki tvísköttun?“

Wilhelm og kona hans, Ólöf tóku þá ákvörðun að hún myndi vera heimavinnandi og gæta barna þeirra. Vegna þeirrar ákvörðunar á hún engin lífeyrissjóðsréttindi og er því með 204 þúsund eftir skatt frá TR.

„TR skerðir mínar lífeyrisgreiðslu eftir skatt um 45% þannig að ævisparnaðurinn er farinn,“ segir Wilhelm og bætir við:

„Til þess að geta hreykt sjálfum sér á tyllidögum og í ræðupúlti Alþingis fundu ráðherrar og alþingismenn á ofureftirlaunum upp það snjalla bragð að greiða einhleypum eldri borgurum sem eru um 25% af okkur 60 þúsund krónur á mánuði í heimilisuppbót. Þannig geta þeir hreykt sér að því að eldri borgarar séu með 300,000 fyrir skatt á mánuði og að TR greiði hæstu eftirlaun allra landa.“

Wilhelm heldur áfram: „En staðreyndin er að Ísland skorar nánast lægst allra OECD landana þegar kemur að hlutfalli greiðslu eftirlauna af VLF aðeins 2,6%. Á hinum Norðurlöndunum eru lífeyrisgreiðslur hins opinbera 5,4-11% af VLF og nánast óþekkt að lífeyrisjóðsgreiðslur séu skertar.“

Wilhelm endar pistil sinn á þessum orðum: „Skilnaður er því eina leiðin til að hækka launin um 60 þúsund á mánuði. DEILIÐ DEILIÐ DEILIÐ DEILIÐ DEILIÐ.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 2 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun