fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Segir fjárlaganefnd brjóta samninga og svíkja loforð: „Verkalýðshreyfingin þarf að vera háværari“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 16. nóvember 2018 17:30

Drífa Snædal Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Drífa Snædal, forseti ASÍ, gagnrýnir meirihluta fjárlaganefndar harðlega í pistli sínum í dag. Hún segir lítinn skilning hjá stjórnvöldum á þeim „risa“ verkefnum sem framundan séu:

„Í vikunni varð ljóst að stjórnvöld ætla ekki að eiga frumkvæði að því að jafna kjörin og beita skatt- og bótakerfinu til jöfnuðar. Slíkar breytingar þarf greinilega að sækja fast og eru það vonbrigði. Nefndarálit meirihluta fjárlaganefndar sýnir okkur stjórnvöld sem hafa lítinn skilning á þeim risa verkefnum sem bíða okkar og hika ekki við að svíkja gefin loforð. Má þar nefna loforð um 4 miljarða aukningu í málefni öryrkja og fatlaðs fólks sem hefur verið mikið í umræðunni en auk þess lítur út fyrir að meirihluti fjárlaganefndar ætli beinlínis að brjóta samning um framlög til VIRK og munar þar 73 milljónum króna. Samkvæmt samningi á framlag ríkisins til VIRK að nema 0,05% af gjaldstofni tryggingagjalds sem þýður 821,5 milljónir kr. en samkvæmt fjárlagafrumvarpinu verður upphæðin 739,5 milljónir. Þrátt fyrir ábendingar hefur þessi upphæð ekki verið löguð í meðförum fjárlaganefndar.“

Háværari verkalýðshreyfing

Drífa segir stjórnvöld skella skollaeyrum við áherslum verkalýðshreyfingarinnar:

„Um áramótin renna út kjarasamningar rúmlega helmings starfandi fólks á íslenskum vinnumarkaði. Til að samningar náist þarf sterka aðkomu ríkisins í skatta- og bótakerfum, húsnæðismálum og baráttunni gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði. Þessar áherslur er verkalýðshreyfingin sammála um og hafa legið fyrir lengi. Stjórnvöld hafa líka verið upplýst um áherslurnar enda blasir vandinn við þeim sem vilja sjá hann. Engu að síður ákveða stjórnvöld að sýna enga tilburði í þessa átt við vinnslu fjárlaga eins og þessi úrlausnarefni komi þeim lítið við. Það er ljóst að verkalýðshreyfingin þarf að vera háværari og reisa skýrari kröfur til að ná fram nauðsynlegum samfélagsbreytingum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Birgir í klemmu

Orðið á götunni: Birgir í klemmu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sandkorn: Hversu margar undirskriftir teljast nægjanlega margar undirskriftir?

Sandkorn: Hversu margar undirskriftir teljast nægjanlega margar undirskriftir?