fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Grípið til aðgerða vegna lyfjaskorts hér á landi – Rýmri heimildir apóteka og tilkynningahnappur fyrir almenning

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 16. nóvember 2018 14:20

Mynd úr safni. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lyfjastofnun hefur gripið til ákveðinna aðgerða til að bregðast við lyfjaskorti. Markmið þeirra er meðal annars að bæta yfirsýn stofnunarinnar yfir stöðuna á hverjum tíma og auðvelda henni þar með að grípa til ráðstafana þegar nauðsyn krefur.

Lyfjastofnun kynnti í lok október nýtt fyrirkomulag sem felur í sér að apótek megi eiga birgðir óskráðra lyfja á lager án þess að þurfi að liggja fyrir samþykki stofnunarinnar til afgreiðslu undanþágulyfsins. Eftir sem áður er þó afgreiðsla undanþágulyfs háð samþykki Lyfjastofnunar. Með þessari breytingu vonast Lyfjastofnun til að afgreiðsla undanþágulyfja til sjúklinga geti gengið mun hraðar fyrir sig en áður.

Rýmri heimildir apóteka við afgreiðslu undanþágulyfja

Lyfjastofnun ákvað fyrr í þessari viku að heimila apótekum í sérstökum tilvikum að afgreiða undanþágulyf áður en formlegt samþykki stofnunarinnar liggi fyrir og er það þá afgreitt með undanþágulyfseðli á pappír. Þetta á við þegar tiltekið lyf er ekki fáanlegt í lengri tíma og brýna nauðsyn ber til að stytta enn afgreiðslutíma frá því sem er þegar seðlar á pappírsformi eru sendir með pósti. Nánar má lesa um þetta á vef Lyfjastofnunar.

Tilkynningarskylda vegna fyrirsjáanlegs lyfjaskorts

Lyfjastofnun hefur gefið út fyrirmæli sem fela í sér að markaðsleyfishöfum lyfja sem eru markaðssett á Íslandi ber nú að tilkynna til Lyfjastofnunar þegar fyrirséð er að skortur verði á tilteknu lyfi. Tilkynning þessi á að berast Lyfjastofnun með eins góðum fyrirvara og hægt er. Með þessu móti öðlast Lyfjastofnun betri yfirsýn þegar birgðaskortur á lyfjum er annars vegar og því verður auðveldara að grípa til ráðstafana í þeim tilfellum þar sem þess er þörf. Nánar má lesa um þetta á vef Lyfjastofnunar.

Tilkynningarhnappur fyrir almenning vegna lyfjaskorts

Lyfjastofnun vinnur að uppsetningu tilkynningarhnapps fyrir almenning þar sem hægt verður að senda nafnlausa ábendingu um lyfjaskort á vefnum. Vonast er til að þetta, til viðbótar við tilkynningar frá markaðsleyfishöfum, verði til þess að bæta yfirsýn Lyfjastofnunar þegar lyfjaskortur er annars vegar. Því verði auðveldara að bregðast við birgðaskorti ef grípa þarf til ráðstafana.

Lyfjastofnun Evrópu vinnur að lausnum vegna lyfjaskorts

Aðgerðarhópur sem settur var á laggirnar á vegum Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) og forstjóra lyfjastofnana Evrópu (HMA), stóð fyrir vinnustofu í höfuðstöðvum EMA í London 8. og 9. nóvember síðastliðinn. Þar komu saman, auk sérfræðinga aðgerðarhópsins, fulltrúar markaðsleyfishafa, stjórnvalda, heilbrigðisstarfsmanna og almennings. Markmiðið er að leita enn frekari leiða til að takast á við og reyna að koma í veg fyrir lyfjaskort. Fulltrúi Lyfjastofnunar var meðal þátttakenda í vinnustofunni. Nánar má lesa um þetta á vef Lyfjastofnunar Evrópu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Birgir í klemmu

Orðið á götunni: Birgir í klemmu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“