fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Valka semur um 1,3 milljarða króna hátæknivinnslu í Rússlandi

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 14. nóvember 2018 10:00

Helgi Hjálmarsson framkvæmdastjóri Völku ehf.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Valka hefur samið við Murman Seafood um hönnun og uppsetningu á nýrri hátæknifiskvinnslu í borginni Kola í Murmansk í Rússlandi.  Fiskvinnslan er fyrsta sinnar tegundar í landinu og verður tæknilegasta bolfiskvinnslan í Rússlandi að uppsetningu lokinni.  Valka mun hafa yfirumsjón með verkefninu en auk Völku koma fleiri tækjaframleiðendur að uppsetningu vinnslunnar. Heildar samningurinn hljóðar upp á 1,3 milljarða króna.

Murman Seafood gerir út sex frystitogara og er eitt þeirra fyrirtækja sem fékk úthlutað viðbótarkvóta hjá rússneskum yfirvöldum gegn því að fjárfesta í landvinnslu. Vinnsluhúsið sem byggt verður frá grunni verður búið nýjustu tækni og tækjum og þar á meðal eru sjálfvirkar beina- og bitaskurðavélar frá Völku.

Með nýja vinnslukerfinu gefst Murman Seafood tækifæri til þess að hámarka verðmæti þeirra 50 tonna af hráefni sem áætlað er að vinna í nýju vinnslunni á degi hverjum. Fram að þessu hefur hráefnið að mestu leyti verið selt heilfryst en með þessari fjárfestingu getur fyrirtækið boðið upp á ferskar hágæða vörur sem eru tilbúnar á neytendamarkað.

Verkefnið hefur verið í undirbúningi í rúmlega eitt ár og er gangsetning áætluð síðla sumars 2019.

„ Það hefur verið mjög ánægjulegt að vinna að undirbúningi að þessu metnaðarfulla verkefni með Murman Seafood. Þetta er fyrsta verkefni þessarar tegundar hjá Völku og stefnum við að því að þróa starfsemi okkar enn frekar í þessa átt. Ávinningurinn af því að einn aðili sjái um allan tækjabúnað í stað fjölmargra fyrirtækja er að flýta vinnsluferlinu og sjá til þess að flæðið í vinnslunni sé með sem bestu móti.  Með þessari nálgun verður vinnslan sú tæknilegasta í Rússlandi, framleiðinin hámörkuð og fiskurinn skorinn með þeim hætti að verðmæti hans sé sem mest“

segir Helgi Hjálmarsson framkvæmdastjóri Völku ehf.

,,Með byggingu á þessari hátækniverksmiðju erum við að bregðast við þörfum markaðarins og bæta samkeppnisstöðu okkar á alþjóðamarkaði. Við munum áfram framleiða hefðbundar flakaafurðir en einnig hefja framleiðslu á bitum sem kallar á aukinn sveigjanleika og tæknistig í vinnslunni. Afurðirnar okkar verða seldar bæði innanlands og til útflutnings. Við erum afar ánægðir með samstarfið við Völku fram að þessu, þeir eru mjög lausnamiðaður samstarfsaðili. Vinnslulínan frá þeim er sú fullkomnasta sem er í boði í dag og mun skapa okkur ákveðna sérstöðu“

segir Denis V. Khiznyakov framkvæmdastjóri landvinnslu hjá Murman Seafood.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki