fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Ásmundur lengir frest fyrirtækja og stofnana til að öðlast jafnlaunavottun

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 14. nóvember 2018 17:00

Ásmundur Einar Daðason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásmundur Einar Daðason félags- og jafnréttismálaráðherra hefur ákveðið að framlengja um 12 mánuði frest fyrirtækja og stofnana til að öðlast jafnlaunavottun samkvæmt ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Framlengingin tekur til fyrirtækja og stofnana, óháð stærð þeirra. Reglugerð ráðherra þessa efnis tók gildi í dag, samkvæmt tilkynningu.

Reglugerðin felur í sér viðbótarákvæði við reglugerð nr. 1030/2017 um vottun á jafnlaunakerfum fyrirtækja og stofnana á grundvelli staðalsins ÍST 85. Með ákvörðun sinni nýtir ráðherra heimild sína til frestunar sem kveðið er á um í bráðabirgðaákvæði VI samkvæmt breytingu á fyrrnefndum lögum sem samþykkt var á Alþingi 1. júní 2017.

Fresturinn nær ekki til allra

Aukinn frestur samkvæmt ákvörðun ráðherra nær ekki til opinberra stofnana, sjóða og fyrirtækja sem eru að hálfu eða að meiri hluta í eigu ríkisins með 25 starfsmenn eða fleiri að jafnaði á ársgrundvelli. Framantaldir aðilar skulu hafa öðlast vottun á jafnlaunakerfi og framkvæmd þess samkvæmt 4. mgr. 19. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, eða staðfestingu samkvæmt 5. mgr. sömu lagagreinar, eigi síðar en 31. desember 2019.

Aukinn frestur nær heldur ekki til Stjórnarráðs Íslands sem skal hafa öðlast vottun eða staðfestingu á jafnlaunakerfi og framkvæmd þess samkvæmt lögum, eigi síðar en 31. desember 2018.

Ákvörðun ráðherra um aukinn frest, líkt og kveðið er á um í reglugerðinni sem tók gildi í dag var unnið í samráði við helstu hagsmunaaðila.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2