fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Seðlabankinn hækkar stýrivexti – Vilhjálmur: „Þetta er nánast stríðsyfirlýsing“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 7. nóvember 2018 09:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 4,5%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum en ákvörðunin var kynnt í morgun.

„Hagvöxtur á síðasta ári og á fyrri hluta þessa árs var meiri en fyrri áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Þrátt fyrir vísbendingar um hægari vöxt á seinni hluta ársins er spáð 4,4% hagvexti á árinu öllu í nóvemberhefti Peningamála. Það er tæplega 1 prósentu meiri vöxtur en bankinn spáði í ágúst. Gert er ráð fyrir að hægja muni á hagvexti á næstu misserum og að spenna hverfi úr þjóðarbúskapnum,“ segir í tilkynningunni.

Bent er á það að verðbólga hafi verið 2,8% í október og munurinn milli mælikvarða á verðbólgu með og án húsnæðis hafi ekki verið álíka lítill í rúm fjögur ár.

Tilkynning Seðlabankans um hækkun stýrivaxta fer illa í verkalýðsforystuna og gagnrýndi Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og 1. varaforseti ASÍ, hana harðlega á Facebook-síðu sinni í morgun.

„Þetta er nánast stíðsyfirlýsing og líkurnar á hörðum átökum á íslenskum vinnumarkaði hafa aukist umtalsvert eftir þessa ákvörðun Seðlabankans, enda er ein af okkar aðalkröfum að vextir á Íslandi lækki,“ sagði Vilhjálmur.

Í tilkynningu Seðlabankans segir að áfram dragi úr árshækkun húsnæðisverðs en á móti komi að innflutningsverð hafi hækkað umtalsvert að undanförnu. „Að hluta endurspeglar það hækkun olíuverðs á alþjóðamarkaði en gengi krónunnar hefur einnig lækkað frá því í ágúst.“

Í tilkynninu Seðlabankans segir að horfur séu á að verðbólga haldi áfram að aukast og verði nokkuð yfir markmiði á næsta ári. Þá hafi verðbólguvæntingar hækkað undanfarið og eru nú yfir markmiði á alla mælikvarða. „Verðbólguhorfur hafa því versnað en á móti vega horfur á að hraðar dragi úr vexti efnahagsumsvifa en áður var talið.“

Þá segir að aukin verðbólga og hærri verðbólguvæntingar síðustu mánuði hafi lækkað raunvexti Seðlabankans umfram það sem æskilegt er í ljósi núverandi efnahagsástands og -horfa. Því er nauðsynlegt að hækka vexti bankans nú, að mati bankans.

„Peningastefnan mun á næstunni ráðast af samspili minni spennu í þjóðarbúskapnum, launaákvarðana og þróunar verðbólgu og verðbólguvæntinga.“

Í tilkynningunni ítrekar peningastefnunefnd að hún hafi bæði vilja og þau tæki sem þarf til að halda verðbólgu við markmið til lengri tíma litið. „Haldi verðbólguvæntingar áfram að hækka og festist í sessi umfram markmið mun það kalla á harðara taumhald peningastefnunnar. Aðrar ákvarðanir, einkum á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum, hafa þá áhrif á hversu mikill fórnarkostnaður verður í lægra atvinnustigi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins