fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Eyjan

Sjómenn heimta svör: „Ef félagsmenn gagnrýna stjórn félagsins verður þeim þá framvegis vikið úr félaginu?“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 6. nóvember 2018 09:34

Heiðveig María Einarsdóttir og Jónas Garðarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Átta sjómenn hafa sent tilkynningu til formanns og stjórnar Sjómannafélags Íslands, þar sem forystan er gagnrýnd og leitað er svara við fjölmörgum spurningum. Er mikil ólga sögð innan félagsins og henni líkt við brotsjó og sökkvandi skip:

„Við slíkar aðstæður þarf mannskapurinn að treysta hver á annan. Það hjálpast allir að, ræða sama og hlusta til þess að lágmarka þann skaða sem hlotist hefur án þess að líta á dagatal eða klukku.  Félagsmenn í Sjómannafélags Íslands gera ekki minni kröfu á forystumenn sína en þeir gera á sig sjálfa svo að afsökun um helgarfrí er ekki tekin gild. Félagið okkar er eins og sökkvandi skip eftir að rangar ákvarðanir hafa verið teknar við björgun, af þeim sem stjórna.“

Í tilkynningunni er fundið að þeim vinnubrögðum er viðhöfð voru varðandi höfnun félagsfundar:

„Þar sem óháður aðili var ekki fenginn til að bera saman félagalistann og undirskriftarlistann óskum við eftir félagalista félagsins. Við óskum einnig eftir upplýsingum um hve margir greiða í félagið annars vegar og hins vegar hve margir eru skráðir félagsmenn. Við sjálfir töldum yfir 100 sjómenn á listanum með einfaldri leit á netinu en vitum að sjálfsögðu ekki hve margir af þeim eru félagsmenn í SÍ. Það að listinn hafi komist á flug meðal almennings er vegna frétta af brottvikningu félaga okkur úr SÍ og er ekki okkar sök.
Að 4 félagsmenn geti farið fram á að einum félaga sé vikið úr félaginu en 8 félagsmenn, sem eru hér undirritaðir, geti ekki óskað eftir almennum félagsfundi lætur okkur líða eins og við séum ekki með rödd í okkar eigin félagi.“

Má enginn gagnrýna ?

Sjómennirnir spyrja hvort að gagnrýni ein og sér sé brottrekstrarsök, með vísun í tilfelli Heiðveigar Maríu:

„Að lesa fréttatilkynningu Sjómannafélags Íslands í dag veltir upp fleiri spurningum sem við óskum svara við; þið segið sjálfir í tilkynningunni að „Heiðveig María Einarsdóttir hefur að undanförnu gagnrýnt forystu Sjómannafélags Íslands afar harkalega í fjölmiðlum. Hún hefur ítrekað borið fram upplognar sakir á forystu félagsins og skaðað það vísvitandi og því miður áþreifanlegum hætti. Þess vegna var tekin ákvörðun um að vísa henni úr félaginu.“ Ef félagsmenn gagnrýna stjórn félagsins verður þeim þá framvegis vikið úr félaginu? Hvað sagði hinn brottvikni félagsmaður ósatt um sem réttlætir brottreksturinn? Í tilkynningunni segir einnig þar sem fjallað er um undirskriftarlistann: „Farið er fram með stórlega ýktar eða upplognar staðhæfingar sem standast enga skoðun en rata í stórar fyrirsagnir áður en þær missa flugið og fjara út. Bornar hafa verið ærumeiðandi ásakanir á forystu Sjómannafélags Íslands um klíkuskap, klæki og fantaskap“. Verður okkur sem nú höfum gagnrýnt forystuna, þó ekki með þessum orðum, vikið úr félaginu? Einnig viljum við koma á framfæri að Heiðveig María Einarsdóttir stendur ekki að þessum undirskriftarlista en eftir viðbrögð formanns og stjórnar félagsins seinustu vikna sjáum við okkur ekki fært að styðja þá stjórn sem nú fer með einræði í félaginu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Í gær

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Enn sérstakt áhættuálag á Ísland hjá erlendum fjárfestum – krónan þjóðhagslegt vandamál?

Guðjón Auðunsson: Enn sérstakt áhættuálag á Ísland hjá erlendum fjárfestum – krónan þjóðhagslegt vandamál?
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: „Samstaðan í ríkisstjórninni“ – sjálfstæðismenn og Framsókn reyndu allt til að losna við VG

Orðið á götunni: „Samstaðan í ríkisstjórninni“ – sjálfstæðismenn og Framsókn reyndu allt til að losna við VG
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segir að Bjarni Benediktsson hafi haft forsetaframbjóðanda fyrir rangri sök í Kastljósi

Segir að Bjarni Benediktsson hafi haft forsetaframbjóðanda fyrir rangri sök í Kastljósi