Tveir buðu sig fram til 1. varaforseta ASÍ á 43. þingi þess í dag. Guðbrandur Einarsson formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja og Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness.
Sigraði Vilhjálmur með tæplega 60 prósent atkvæða.
Atkvæði féllu þannig:
Guðbrandur Einarsson- 115 40,2%
Vilhjálmur Birgisson- 171 59,8%
Heildarfjöldi atkvæða 289
Auðir og ógildir 3
Gild atkvæði 286
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, sem hafði tilkynnt framboð til 1. varaforseta, dró framboð sitt til baka fyrr í dag. Bar hann því við að hann vildi skapa sátt innan sambandsins:
„Ég tók ákvörðun um að draga framboð mitt til baka til að skapa sátt innan hreyfingarinnar, sem er ennþá uppfull af vondri pólitík og taumlausu hatri,“
sagði Ragnar Þór við Morgunblaðið.
Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður Rafiðnaðarsambands Íslands var sjálfkjörinn í embætti 2.
varforseta.