Frá því er greint í Morgunblaðinu í dag að Hitt húsið muni flytja úr Pósthússtræti þar sem það hefur haft aðsetur næstum tvo áratugi. Hitt húsið er félagsmiðstöð ungs fólks, þar fer fram margvísleg starfsemi eins og sjá má á vefsíðu þess. Í kringum Hitt húsið hefur ætíð verið litskrúðugt og skemmtilegt mannlíf – alveg í hjarta miðbæjarins, á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis.
Þetta eru sögufrægar byggingar, Pósthússtræti 3 og 5. Annað þeirra hefur hýst pósthúsið í Reykjavík í meira en hundrað ár. Nú er pósturinn að hverfa þaðan. Hitt var byggt sem barnaskóli en var síðan lögreglustöð um árabil.
Nú er fasteignafélagið Reitir orðið eigandi þessara bygginga. Hitt húsið er að missa leiguna og hverfur á braut með starfsemi sína – og allt unga fólkið.
Þá er von að maður spyrji – hvað kemur í staðinn? Vonandi eitthvað skemmtilegt – sem hæfir þessum merku byggingum.
Svarið er að finna í auglýsingu sem birtist á internetinu á ensku. Þar er sagt að hægt verði að leigja húsnæði þarna frá árinu 2019 – og sérstaklega nefnt að þarna verði skrifstofur, verslunarrými og pláss fyrir veitingasölu.
Enginn hefur enn nefnt mathöll – en það gæti komið að því.
Eitthvað segir manni samt að ekki verði mikill skortur á plássi undir skrifstofur, verslanir og veitingastaði í bænum á næstu árum. Væri kannski hægt að kalla eftir betri hugmyndum? Lyfta þessu á hærra plan?
Annars er margt að gerast í Pósthússtrætinu. Ólafur Teitur Guðnason setti þessa mynd á Facebook og heldur því fram að hún sé raunveruleg. „Benedorm“ – er það komið til að vera?