fbpx
Föstudagur 03.maí 2024
Eyjan

Gunnar Smári: „Haldið þið kjafti, þið sem ekkert vitið um hvernig það er að lifa af 300 þúsund krónum í landi dýrtíðar og húsnæðisokurs“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 24. október 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokks Íslands, undrast að sjónarmið efnaðra hagsmunaðila í kjarabaráttu fái það vægi sem raun ber vitni í fjölmiðlum. Líkir hann þeim sem vara við launakröfum láglaunastéttanna, við forréttindahópa sem rísa upp á móti þegar kröfur um almenn mannréttindi eru settar fram, til dæmis er varðar kvenréttindi, réttindi samkynhneigðra og fatlaðra:

„Þau sem stigið hafa fram á undanförnum dögum og varað við kröfum láglaunastéttanna eru öll á ágætum launum; sum eru með um milljón á mánuði, önnur nær tveimur og mörg með mun hærri laun (forstjórarnir hafa nú bæst í hópinn og rifa upp meðaltalið). Ég held ég geti fullyrt að enginn með minna en þreföld lágmarkslaun hafi stigið fram til að lýsa yfir að kröfur láglaunafólksins væru sturlaðar (nema kannski grey Hörður Ægisson leiðarahöfundur Fréttablaðsins, sem fékk yfir sig mestar skammirnar).

Þessi staða, að betur sett fólk, blint á forréttindi sín, vilji draga úr mannréttindakröfum veikar settra hópa (kjarabarátta láglaunafólks sem fær lægri laun en duga til framfærslu er mannréttindabarátta) er alkunn. Þegar konur krefjast virðingar og réttar stiga fram karlar til varnar eigin forréttindum. Á sínum tíma, blessunarlega sjaldgæfara á seinni tímum, mótmælti gagnkynhneigt fólk réttindakröfum samkynhneigðar, ófatlaðir kröfum hinna fötluðu, rígfullorðnir kröfum ungdómsins o.s.frv.“

Þarf að hlusta endalaust á fólk úr öðrum samfélagshópum ?

Gunnar segir það skrítið að þessi „harmakvein elítunnar“ sem búi við fjárhagslegt og félagslegt öryggi rati á forsíður dagblaðanna:

„…og í fyrstu fréttir sjónvarps- og útvarpsstöðvanna. Röflið í körlunum yfir kvennahreyfingunni hefur blessunarlega verið vísað til sætis í virkum í athugasemdum; en hvers vegna fær þá hneykslun betur settra yfir kröfum láglaunafólks ekki að vera þar einnig, þar sem hún á heima?

Myndum við sætta okkur við það í nokkru öðru máli að þau sem málið snertir, láglaunafólk í þessu tilfelli, myndi hvergi birtast í meginstraumsfjölmiðlum en okkur væri þess í stað boðið upp á endalausar vandlætingar þeirra sem þekkja ekki til stöðu þessa hóps og telja sig þurfa að verja eigin stöðu með því að hafna kröfum hans? Ekki myndum við sætta okkur við linnulausar fréttir um stöðu kvenna þar sem engin kona tæki þátt. Það ástand heitir Saudi Arabía. En láglaunafólk á Íslandi lifir í sinni Saudi Arabíu, býr við vond kjör og lítinn rétt en fær ekki að taka þátt í umræðunni um stöðu sína. Þarf að hlusta endalaust á fólk úr öðrum samfélagshópum ræða um hvort það sé í raun ráðlegt að konur fái að keyra bíl.“

Hunskist þið heim

Þá segir Gunnar Smári:

„Kannski er kominn tími til að kjarabarátta hinna verst settu taki mið af mannréttindabaráttu undirsettra hópa á liðnum áratugum og segi: Ekkert um okkur, án okkar. Haldið þið kjafti, þið sem ekkert vitið um hvernig það er að lifa af 300 þúsund krónum í landi dýrtíðar og húsnæðisokurs, haldið þið kjafti og hunskist þið heim.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Undirrita samninga við Neos-flugfélagið um leiguflug

Undirrita samninga við Neos-flugfélagið um leiguflug
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir forsetaframboðið ekki vera viðbrögð við því að leggja eigi starfið hennar niður

Segir forsetaframboðið ekki vera viðbrögð við því að leggja eigi starfið hennar niður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Halla Hrund flýgur á toppinn – skjálftavirkni eykst

Orðið á götunni: Halla Hrund flýgur á toppinn – skjálftavirkni eykst
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón