Íslendingum þykir leiðinlegast að ferðast með strætó í vinnu eða skóla. Þetta kemur fram í könnun Maskínu, sem skoðaði hversu skemmtilegt eða leiðinlegt fólki þætti mismunandi ferðamátar. Á hinum enda niðurstöðunnar kemur fram að Íslendingum þykir skemmtilegast að hjóla eða ganga.
Könnunin spurði einnig þá sem eru í vinnu eða skóla hvað ferðatíminn væri langur að meðaltali. Um 65,2% svöruðu að ferðatíminn tæki 15 mínútur eða minna. 24,7% sögðu að það tæki sig á bilinu 16 til 30 mínútur að komast á áfangastað.
Svarendur voru af báðum kynjum, alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Fram kemur að 40% þeirra sem ferðuðust á bíl þótti ferðin skemmtileg. Strætó sker sig hins vegar úr. Aðeins 30% þótti strætóferðir skemmtilegar.
Rúmlega 68% Íslendinga ferðast til og frá vinnu eða skóla á einkabíl sem bílstjóri. Fólk á aldrinum 18 til 29 ára ferðast sjaldnar en aðrir á einkabíl sem bílstjóri en 60 ára og eldri sækja oftast í þann ferðamáta.
45% Íslendinga fannst skemmtilegt að ferðast í vinnu eða skóla síðast þegar þau ferðuðust þangað. Fólki yfir fertugt fannst skemmtilegast að ferðast og fólk á aldrinum 18-29 ára leiðinlegast. Þá þótti Íslendingum sem gengu eða hjóluðu til vinnu eða skóla mun skemmtilegra að ferðast en öðrum, en þeir sem fóru með strætó leiðinlegast.
Hvað segja lesendur? – Hvaða ferðamáti er skemmtilegastur fyrir utan að ganga – Taktu könnunina